fjárlög 2007.
Hæstv. forseti. Ég hef fylgst nokkuð vel með þeirri umræðu sem hefur farið fram í dag og hún hefur um margt verið mjög áhugaverð. Það er sláandi við umræðu af þessu tagi hve alhæfingargjörn hún stundum verður og ég hugsa að þeirri gagnrýni megi beina til okkar í stjórnarandstöðu oft og tíðum ekkert síður en til stjórnarliða. Auðvitað ber að viðurkenna það sem vel hefur verið gert og það sem vel hefur tekist til. Hlutverk okkar er að reyna að setja málin í raunsætt og sanngjarnt samhengi. Þannig hljótum við að staðnæmast við þá staðreynd að skuldir íslenska ríkisins hafa snarminnkað á undanförnum árum og það svo mjög að við erum í hópi þeirra ríkja þar sem ríkissjóðir skulda einna minnst. Ég staðnæmist við það sem fram kemur í gögnum með fjárlagafrumvarpinu, að hrein staða ríkissjóðs, hreinar skuldir að frádregnum viðskiptareikningum og innstæðum ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands, hafi lækkað úr 32% af landsframleiðslu árið 1997 í aðeins 1,4% á næsta ári. Þetta er ágætt og árangur svo langt sem það nær og hér kemur að því að við skoðum málin í raunsæju samhengi.
Það er gott þegar tekst að ná skuldum ríkissjóðs niður á þenslutímum, vegna þess að á samdráttartímum er mikilvægt að geta þanið út og jafnvel tekið á sig skuldir til að örva atvinnulífið. Á hitt ber að líta að skuldum ríkissjóðs hefur að hluta til verið náð niður með ráðstöfunum sem eru takmarkaðar í tíma og þá vísa ég til sölu ríkiseigna. Ríkissjóður hefur hagnast vegna sölu á eignum sínum, þar á meðal arðbærum eignum. Ég nefni t.d. Landssíma Íslands, ég nefni bankana, þó þeir hafi ekki skilað beinum arði inn í ríkissjóð á sama hátt og Landssíminn gerði. En aðalatriðið er að ein skýringin á bak við velgengni ríkissjóðs er sú að við höfum verið að selja arðbærar eignir. Harold McMillan, fyrrum forsætisráðherra Breta, varaði einhvern tíma við því að menn seldu fjölskyldusilfrið og var þá að vísa í einkavæðingu af því tagi sem við höfum orðið vitni að á undanförnum árum. Þetta er ein ástæðan fyrir því að tekist hefur að ná skuldum ríkissjóðs niður.
Önnur ástæðan er sú að tímabundnir þensluskattar hafa verið mjög miklir. Hagur ríkissjóðs hefur verið góður m.a. vegna þess að veltan í samfélaginu hefur verið mjög mikil. Umfang efnahagsstarfseminnar hefur þanist út. Að sjálfsögðu er það gott ef við lítum þröngt á málið. Skoðum þetta hins vegar í samhengi skuldasöfnunar þjóðarinnar og þeirrar staðreyndar að á þessu ári nemur viðskiptahallinn um 19% af landsframleiðslu sem er á þriðja hundrað milljarða króna. Við höfum búið við viðskiptahalla ár eftir ár, ekki eins mikinn á öðrum árum og þessu ári en þó mjög mikinn. Viðskiptahallinn á þessu ári er um 90 milljörðum meiri en ráð var fyrir gert þegar við ræddum fjárlög fyrir réttu ári síðan. Þetta er ein ástæðan fyrir því að ríkissjóður hefur hagnast. Á þenslunni, á geysilegum innflutningi og þenslu sem við hljótum að spyrja hvort innstæða sé fyrir. Þetta er önnur ástæðan fyrir velgengni ríkissjóðs.
Þetta meina ég þegar ég segi að það sé mikilvægt að skoða málin í víðu, raunsæju samhengi. Þegar við skoðum málin þröngt gleðjumst við öll yfir því að tekist hafi að ná skuldum ríkisins niður. Það er gott, það er jákvætt. Þegar málin eru skoðuð í þessu víða samhengi fer það að taka á sig aðra mynd, eða fyllri mynd skulum við segja.
Enn er þess að geta að skuldir sveitarfélaganna hafa verið að aukast. Aftur skulum við forðast alhæfingar þar, vegna þess að sum sveitarfélögin eru í býsna góðum málum. Þau hafa skilað rekstrarafgangi á undanförnum árum á meðan önnur eru rekin með halla, sum með verulegum halla. 60 sveitarfélög hafa skilað jákvæðri afkomu, 37 sveitarfélög neikvæðri og sum mjög neikvæðri.
Þetta er eitt af því sem hefur verið að gerast, að ríkið hefur fært verkefni frá sér yfir til sveitarfélaganna án þess að tekjustofnar hafi fylgt með í nægilega ríkum mæli. Þetta er ein önnur ástæða fyrir því að tekist hefur að ná skuldum ríkisins niður en að sama skapi hafa þær þá komið fram annars staðar.
Í þriðja lagi verðum við að skoða skuldir þjóðarbúsins í heild sinni. Vegna þess að þó að við lítum svo á að ríkissjóður sé það sem við höfum öll sameinast um og er á ábyrgð okkar allra, þá erum við ein þjóð í þessu landi, heimilin og fyrirtækin, og þess vegna skoðum við skuldastöðu okkar allra sameiginlega. Það gerði líka Fitch, matsfyrirtækið Fitch. Þegar það lítur á íslenskan þjóðarhag þá horfir það til þjóðarbúsins í heild sinni.
Þótt það hafi verið alveg rétt hjá hv. þm. Bjarna Benediktssyni að benda á hina mjög svo hagstæðu skuldastöðu ríkissjóðs, þá erum við skuldugasta þjóð í heimi þegar litið er á þjóðarbúið í heild sinni. Að minnsta kosti skuldugasta þjóð sem matsfyrirtækið Fitch metur. (Gripið fram í.) Og líka með tilliti til eigna. Matsfyrirtækinu hefur verið bent á það, því hefur verið haldið fram að það sé mikilvægt, og hv. þm. Bjarni Benediktsson og hv. þm. Birkir Jón Jónsson hafa bent á að, að sjálfsögðu þurfi að skoða nettóstöðuna. Það þurfi líka að meta eignasöfnun erlendis. Þegar við t.d. metum skuldsetningu fjármálafyrirtækja þá þurfum við einnig að skoða hver eignamyndunin er. Það gerir Fitch fyrirtækið líka og hefur bent á að skuldirnar hafi numið 357% af erlendum tekjum þjóðarbúsins árið 2005 og Fitch fyrirtækið kemst að þeirri niðurstöðu að Ísland sé skuldugast af öllum löndum sem það meti til lánshæfis.
Það kemur fram í síðasta mati Fitch, sem var birt núna í nóvember — annað mat birtist fyrr á árinu, ég held að það hafi verið í febrúar — að þá hafi eignastaðan orðið heldur hagstæðari, frá þeim tíma. En engu að síður segir hér í síðustu skýrslu Fitch, með leyfi forseta:
„Þessi þrönga staða ásamt miklu ójafnvægi í hagkerfinu gerir landið berskjaldað fyrir ytri áföllum svo sem hækkun vaxta erlendis og/eða skyndilegum breytingum á viðhorfum fjárfesta. Slík framvinda og líkleg viðbrögð við þeim gæti valdið mun dýpri kreppu en því skammvinna samdráttarskeiði sem fylgdi í kjölfar svipaðrar fjárfestingaruppsveiflu á seinni hluta tíunda áratugarins með óhagstæðum afleiðingum fyrir heimili, fyrirtæki og banka sem eru mun skuldsettari nú en áður var.“
Þetta segir í þessari síðustu skýrslu Fitch sem fram kemur og var rækilega tíunduð í Morgunblaðinu föstudaginn 10. nóvember undir fyrirsögninni: Ísland skuldar mest allra landa sem Fitch metur.
Þetta eru staðreyndir málsins. Og hér kemur fram í öðrum gögnum sem ég er með undir höndum um þessa skoðun, það er línurit sem sýnir að erlend staða þjóðarbúsins sé orðin neikvæð sem nemur um það bil þrettánföldum útflutningstekjum.
Þetta eru náttúrlega staðreyndir sem við hljótum að horfa til. Það dugir ekki að einskorða umræðuna við ríkissjóð einan. Við verðum að skoða samhengi hlutanna og skoða það af raunsæi. Horfa til þess á hvaða forsendum og hvernig, hvers vegna skuldunum var náð niður. Vegna sölu á ríkiseignum, í sumum tilvikum, arðbærum ríkiseignum, sem hefur verið líkt við að selja fjölskyldusilfrið því það gerum við bara einu sinni. Með því að færa skuldir frá ríkinu, þungann frá ríkinu yfir á sveitarfélögin og vegna þensluskatta sem eru tímabundnir. Sumir vonandi tímabundnir segjum við og þá er ég að horfa til þeirrar þenslu sem er fjármögnuð með geigvænlegri skuldasöfnun erlendis. Á þessu ári erum við að tala um neikvæðan halla á þriðja hundrað milljarða króna.
Þess vegna er það svolítið undarlegt að menn skuli koma hér og stjórna liðinu og segja að allt sé í lukkunnar velstandi. Ég velti því fyrir mér hvort þeir mundu segja það um sitt eigið fjölskyldubókhald ef þeir ár eftir ár tækju skuldir langt, langt umfram tekjur sínar. Skuldir langt umfram tekjur sínar og segðu svo: Sjáið þið bílana sem ég er að kaupa: Sjáið þið allar fínu utanlandsferðirnar sem ég er að fara í. Síðan væri farið að rýna í bókhaldið og þá kæmi í ljós að þeir væru í vaxandi skuld og áhöld um hvort og hvernig þeir færu að því að greiða þær til baka.
Það er annar handleggur en hitt skiptir máli að við skoðum þessi mál af raunsæi og reynum að taka á hverjum þeim vanda sem við teljum að ógni jafnvægi í íslensku þjóðarbúi. Þetta er svona almennt um skuldastöðuna.
En áður en ég vík frá þessu eða hverf frá þessu langar mig til að tala aðeins nánar um forsendur þessara fjárlaga. Það var svolítið sérkennileg upplifun, hún er ekki alveg ný af nálinni í mínum reynsluheimi að vísu, að hlusta á sérfræðinga koma fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og gera grein fyrir mati sínu á því sem þeir telja líklegt að gerist í íslensku efnahagslífi á komandi ári. Það var sláandi að Seðlabankinn og ýmsar bankastofnanir virtust horfa fram hjá því sem mestu máli skipti. Ekki allar að vísu. En það sem mestu máli skiptir að sjálfsögðu er hvað hér gerist í stóriðjumálum. Hvað gerist varðandi stóriðjuna?
Hæstv. iðnaðarráðherra, formaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin hafi fyrir löngu hætt að fylgja stóriðjustefnu. Það var nú gert fyrir þremur árum, held ég að hann hafi sagt að væri, tveimur eða þremur árum, ég man ekki hvort er. En á sama tíma eru uppi áform um stórfelldar fjárfestingar í stóriðju. Í virkjunum og stóriðju.
Þannig eru áform um að stækka álverið í Straumsvík úr 180.000 tonnum í 460.000 tonn, þ.e. um 250.000 tonn. Það á eftir að greiða atkvæði um deiliskipulag í Hafnarfirði, sem er með öðrum orðum atkvæðagreiðsla um stækkun álversins. En engu að síður er það svo að tvö fyrirtæki, tvær teiknistofur eru þegar byrjaðar að hanna kerskálana eða gera tillögur þar að lútandi. Undirbúningurinn er á fullri ferð.
Við þekkjum að á teikniborðinu er álver í Helguvík upp á 250.000 tonn og nýtt álver við Bakka á Húsavík upp á 250.000 tonn. Enda þótt ljóst sé að ekki verði ráðist í þessar framkvæmdir á næsta ári þá er engu að síður ljóst að ákvörðun um að ráðist verði í framkvæmdirnar mun hafa veruleg áhrif í efnahagslífinu. Þar er ég að tala um væntingar sem hafa áhrif á gengi krónunnar, á gengi gjaldmiðilsins og ég er einnig að tala um beinar framkvæmdir. Ég er að tala um fjárfestingar og framkvæmdir. Ég tók hér sem dæmi, örlítið dæmi, að teiknistofurnar eru þegar byrjaðar að teikna álver við nýju kerskálana í Straumsvík.
Þetta eru staðreyndir. Það er eiginlega furðulegt að ríkisstjórnin skuli komast upp með það, ekki gagnvart stjórnarandstöðunni, við erum orðin ýmsu vön þar, heldur gagnvart sínu eigin liði, gagnvart stjórnarmeirihlutanum að neita að svara nokkru um áform sín í þessum efnum. Annars vegar höfum við staðhæfingar formanns Framsóknarflokksins um að ríkisstjórnin hafi hætt að fylgja stóriðjustefnu fyrir þremur árum eða voru það tvö, ég man það ekki, a.m.k. fyrir nokkrum árum eða missirum. Og hins vegar höfum við þennan veruleika á borðinu.
Þegar við nú erum að ræða fjárlögin og forsendur fjárlaga er fráleitt annað en að taka þetta með í reikninginn. Þetta viðurkenndu að sjálfsögðu fulltrúar bankanna og fjármálastofnana sem komu á okkar fund í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.
Um forsendur fjárlaganna og það sem hér hefur verið sagt, en ég ætla að gera pínulítinn útúrdúr í ræðu minni af því að hv. þm. Guðjón Ólafur Jónsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, er sestur hér á stól. Ég hlýddi nefnilega á mál hans í dag. Hann talaði þar um vilja Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs til þess að stöðva iðnaðaruppbyggingu í landinu, held ég að hafi verið. Og er þá væntanlega að tala um þá stefnu sem Framsóknarflokkurinn segir í einu orðinu að sé ekki til. Við erum að stöðva það sem formaður Framsóknarflokksins segir að sé ekki til. Það hafi verið hætt við stóriðjustefnuna fyrir nokkrum missirum og þessi áform séu í rauninni ekki til í veruleikanum. Er það þetta sem við erum að stöðva? Framsóknarflokkurinn verður eiginlega að ná sér saman um einhverja hugsun sem heil brú er í. Er ekki kominn tími til þess?
Síðan að bönkunum. Hv. þingmaður sagði að sá sem hér stendur væri mikill áhugamaður um að koma allri bankastarfsemi úr landi. Sú var tíðin að sá flokkur sem hv. þm. Guðjón Ólafur Jónsson og hv. þm. Birkir Jón Jónsson eru fulltrúar fyrir, Framsóknarflokkinn, var flokkur samvinnu. Innan flokksins rúmaðist oft talsverð sanngirni líka. Mér heyrist flokkurinn vera núna orðinn flokkur sérhyggju og samkeppni, fyrst og fremst. Flokkur sem ekki skilur röksemdir þeirra sem hafa áhyggjur af vaxandi tekjuskiptingu í landinu og þeirri staðreynd að auðmenn eru farnir að stýra samfélagi okkar í mjög ríkum mæli á ekkert skylt við þá gömlu samvinnuhugsjón sem Framsóknarflokkurinn var reistur á, eða þannig er það í mínum skilningi.
Þeir eru til, og ég skil það þegar fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, ég tali nú ekki um hægri sinnaðir menn í þeim flokki koma fram og reyna að telja okkur trú um að allur sá auður sem er verið að skapa í ýmsum stofnunum, það er rétt, með fjárfestingum og framkvæmdum hér á landi og víða um heim, að hann sé vegna þess að það séu til nokkrir brilljant strákar, svona sex, sjö, átta manns sem séu séní í fjárfestingum. Þannig sé þetta allt til komið. Ég horfi allt öðruvísi á þessi mál.
Annars vegar erum við að tala um íslenska bankakerfið sem er eitt þróaðasta bankakerfi í heiminum, vegna þess að það byggir á mjög traustum hefðum, góðum mannskap og mjög þróuðum kerfum. Ef við berum íslenska banka saman við það sem við finnum víða í Bandaríkjunum og kannski almennt í Bandaríkjunum og tvímælalaust við það sem við finnum í Evrópu, þá búum við við mjög þróað bankakerfi. Það er tæknilega mjög þróað og það er mjög gott. Þetta hef ég oft sagt.
Þessir bankar hafa síðan verið einkavæddir og menn hafa fengið mikla peninga í hendur, auk sjóða sem einnig hafa verið settir inn í þessa púllíur. Ég nefni þar FBA á sínum tíma, sem fór síðan inn í Íslandsbanka, Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, sem sameinaður var úr ýmsum sjóðum. Þarna er komið mikið fjármagn, ef menn fá það í hendur, þar sem auðvelt er að láta kapítölin ávaxta sig, svo maður vitni í Skúla Thor. (Gripið fram í.) frá öndverðri 20. öldinni. Það er hægt.
Síðan koma lífeyrissjóðirnir. Hafa menn hugleitt hvað það í reynd hefur þýtt þegar tugum milljarða er pumpað viðstöðulaust út í atvinnulífið og út í fjárfestingar þessara aðila? Þegar það síðan gerist að menn eins og ég, fólk úr Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, einstaklingar í verkalýðshreyfingu og í samfélaginu almennt, koma og segja við þá sem þarna stýra för: Farið ykkur ekki óðslega, farið vel með. Takið ekki óþarflega mikið til ykkar og sýnið samfélagslega ábyrgð. Ef þið gerið það ekki eruð þið að segja ykkur úr lögum við samfélag ykkar, það samfélag sem þið eruð sprottnir upp úr og eigið velgengni ykkar að þakka. — Það var það sem ég sagði hér forðum, forðum sem þýðir fyrir fáeinum dögum eða vikum. Þetta er hugsunin á bak við það.
Að sjálfsögðu vil ég hafa öflugt, íslenskt bankakerfi. Þess vegna mæltum við með því í okkar flokki að við hefðum a.m.k. einn ríkisbanka, ekki vegna þess að okkur þætti það vera sáluhjálparatriði að ríkið ætti og ræki banka, alls ekki, röksemd okkar var sú að í litlu efnahagskerfi eins og okkar væri það mikilvægt, ekki síst sem forsenda samkeppni því að sú hætta væri fyrir hendi, sem hefur síðan reynst raunveruleg, að sömu aðilar eignuðust lánveitandann og væru í senn þiggjendur sjálfir, þ.e. að fyrirtæki og fjármálamenn í atvinnulífinu eignuðust fjármálafyrirtækin.
Nú vitum við ekki hvernig okkur reiðir af og ég vona að sjálfsögðu innilega að allt fari vel. Við eigum öll mikið undir því komið. Lífeyrissjóðir landsmanna eiga mjög mikið undir því komið og við eigum það öll. Við höfum öll rétt á að setja fram og reisa siðferðilegar kröfur á hendur þeim sem hafa fengið að stýra þessum stofnunum, við höfum fullan rétt til þess. Við höfum horft til þess, og þar höfum við nefnilega verið bandamenn, Framsóknarflokkurinn og stjórnarandstaðan, vissulega Vinstri hreyfingin – grænt framboð, og verkalýðshreyfingin, að standa t.d. vörð um Íbúðalánasjóð. Þar hafa fjármálastofnanirnar gerst mjög frekar við að reyna að koma honum fyrir kattarnef. Ég bíð spenntur eftir að sjá hverjar lyktir verða af viðræðum sem hafa verið í Brussel undanfarna daga um kærur sem fjármálakerfið hefur sett fram á hendur Íbúðalánasjóði og ríkinu fyrir að voga sér að hafa uppi einhverjar samfélagslegar áherslur. Þetta þykir mér vera hinn stóri slagur í stjórnmálunum, hvort og að hvaða marki við ætlum að varðveita hin samfélagslegu gildi og að hvaða marki við ætlum að hleypa fjármálaöflunum inn á gafl. Þetta er pólitísk barátta sem skiptir máli hvar í flokk og hvar í sveit menn skipa sér.
Hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson hélt andheita ræðu að venju við þessa umræðu. Hann fór vítt um völl, um alla spítalaganga landsins og skólastofur og almannastofnanir og um heiminn allan reyndar, því að hann sagði að misskiptingin í heiminum væri ekki orðin til vegna mannvonsku, það væri ekki mannvonskan sem réði. Nei, en kannski eru það áherslur við stjórnun heimsins og skiptingu verðmætanna sem skipta máli hvort örbirgðinni er haldið við og þeirri miklu tekjuskiptingu sem við þekkjum í heiminum í dag. Að sjálfsögðu er heimurinn, eins og okkar þjóðfélag, háður mannanna verkum, vilja okkar til að stýra því og auðvitað getum við haft áhrif, til góðs eða ills, til að auka á þessa skiptingu eða draga úr henni og stefna að jöfnuði.
Síðan hefði verið fróðlegt að heyra hv. þingmann leggja nánar út af þeirri kenningu sinni að allur ágóði á undanförnum árum hafi farið til borgaranna en ekki til ríkis og sveitarfélaga. Ég náði þessu ekki alveg en þetta þýðir væntanlega á mannamáli að í stað þess að sjúklingur fái ókeypis umönnun á sjúkrahúsi fái hann að borga beint, af því að hann hafi fengið þá peninga að einhverju leyti í vasann áður. Vandinn er sá að kjör hinna veiku og sjúku, sem þurfa á slíkum aðgangseyri að velferðarstofnunum landsins að halda í sífellt ríkari mæli, hafa ekki bæst heldur rýrnað.
Áður en ég kem nokkrum orðum að sjálfu fjárlagafrumvarpinu, og þá ekki síður þeim tillögum sem stjórnarandstaðan hefur sameinast um, langar mig til að segja nokkur orð um ræðu hv. þm. Bjarna Benediktssonar, sem kvaddi sér sérstaklega hljóðs til að fjalla um ástandið í ríkisfjármálum og hve allt væri þar gulli glóandi. Hann sagði að það væri mikilvægt að ná tökum á stjórnun ríkisstofnana, og hvað þurfti að gera til þess? Jú, það þyrfti að vera auðveldara að reka fólk. Þess vegna vill hv. þm. Bjarni Benediktsson afnema það sem kallað er áminningarskylda úr lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
Hver er þessi áminningarskylda, hvað er hér um að ræða? Þeir sem stýra stofnunum eru ráðnir þar sem embættismenn núna, það er hin almenna regla. Embættismenn eru ráðnir til fimm ára í senn og þá þarf að endurnýja ráðningu þeirra. Hægt er að segja embættismönnum upp eins og öðrum og þá gengur það eftir ákveðnu ferli, en hin almenna regla er að embættismenn eru ráðnir til fimm ára í senn. Þetta er samkvæmt lagabreytingum sem lögfestar voru, að mig minnir, 1. janúar 1997. Síðan er sú regla sem gildir almennt um starfsfólk hjá hinu opinbera. Það er hægt er að segja fólki upp störfum og það er hægt er að gera á ýmsum forsendum. Það er hægt að ráðast í kerfisbreytingar, umbreyta og umbylta starfseminni og leggja störf niður. Þá á fólk rétt á biðlaunum. Það fer eftir því hvenær fólk réðist til starfa hvort það á rétt á þessum biðlaunum, vegna þess að eftir 1997 var biðlaunarétturinn afnuminn í lögunum og hann gildir einvörðungu um þá sem ráðnir voru fyrir þann tíma. Þetta var mikið afturhaldsskref þegar þessu var breytt.
Fólk sem á rétt til biðlauna getur verið á launum í sex mánuði eða tólf mánuði ef það hefur verið lengi í starfi. Er um miklar upphæðir að ræða? Er þetta gott eða slæmt? Þetta er mjög góð regla og almennt er atvinnureksturinn ekki dýr og vissulega ekki ef um er að ræða fólk í láglaunastörfum. Við skulum taka einstakling með 200 þúsund í sex mánuði, það eru 1,2 milljónir sem viðkomandi hefur í laun fái hann ekki annað starf. Fái hann annað starf, sambærilegt starf, dregst sú upphæð frá þessari. Við erum ekki að tala um mikla peninga.
Nú þykir öllum alveg sjálfsagt ef stórvesírum er skákað til í atvinnufyrirtækjum að þeir verði að fá í hendur milljónir, jafnvel tugi milljóna, jafnvel hundruð milljóna. Það þykir ekki nokkur skapaður hlutur hjá neinum í þeirri átt, en mönnum þótti alveg stórkostlegt hagsmunamál að afnema biðlaunaréttinn hjá hinum almenna starfsmanni. Biðlaunarétturinn var þannig afnuminn.
Ein leiðin til að segja fólki upp er því að ráðast í skipulagsbreytingar. Það er hægt hjá hinu opinbera og þá er hægt að segja fólki upp störfum á málefnalegum grundvelli eins og þessum. Það er málefnalegur grundvöllur ef ráðast á í kerfisbreytingar, skipulagsbreytingar í stofnunum.
Að lokum er að sjálfsögðu hægt að segja upp fólki sem ekki rækir sínar skyldur, sem ekki sinnir starfi sínu sem skyldi. Það eina sem þarf að gera þá er að veita því áminningu til að það eigi kost á að leiðrétta misskilning sem hugsanlega veldur því að atvinnurekandinn telji að viðkomandi hafi ekki rækt skyldur sínar eða til að bæta sig í starfi. Slíka áminningu ber að veita og það er hún sem menn vilja losna við. Og það eru yfirleitt hinir veiku stjórnendur sem kalla á þetta, það eru einstaklingar sem þora ekki að kalla starfsmenn sína fyrir sig og ræða opinskátt við þá hverju sé áfátt í starfi þeirra, þora ekki að kalla á þá til að ræða það, vilja bara reka þá og helst láta þá hverfa af vinnustaðnum viðstöðulaust, helst samdægurs. Þetta er farið að tíðkast mjög oft. Það er hætt við því að veikir stjórnendur noti þessa aðferð og þeir vilja fá stuðning löggjafans til þess. Þá stekkur náttúrlega íhaldið fram, alltaf þegar eitthvað horfir í afturhaldsátt, og styður það. Við urðum vitni að því áðan að ungur maður úr Sjálfstæðisflokknum, hv. þm. Bjarni Benediktsson, hinn mætasti maður að flestu leyti, leyfir sér að detta ofan í þann hrikalega pytt að taka undir með þessu afturhaldssjónarmiði sem ég segi að stríði beinlínis gegn mannréttindum.
Þetta er hluti ástæðunnar fyrir því að menn vilja einkavæða og hlutafélagavæða opinberar stofnanir, þ.e. að komast fram hjá lögum og reglugerðum af þessu tagi. (Gripið fram í: Eigum við ekki að breyta starfsmannalögunum?) Breyta starfsmannalögunum í þá veru að hægt sé að reka fólk án þess að gefa skýringar? (Gripið fram í: … að breyta stofnunum.) Það má segja það en ég held að hvorugu þurfi að breyta. Mér hefur virst, og ég þekki nú nokkuð til slíkra mála, að snjallir og góðir stjórnendur eigi ekki í nokkrum vandræðum með þetta. Og ég er alls ekki að taka upp hanskann fyrir þá sem ekki sinna starfsskyldum sínum, aldeilis ekki, auðvitað eiga allir að gera það. Þeir sem ekki rækja starf sitt, gera það ekki af hirðusemi og skyldurækni, eiga ekki að vera í því starfi, svo einfalt er það. Þetta vildi ég nefna sérstaklega í þessu samhengi.
Á Alþingi eru fimm stjórnmálaflokkar. Þeir eru allir með mismunandi áherslur. Mér hefur heyrst í dag að stjórnarmeirihlutinn sé nokkuð samstiga í því sem hann hefur sagt. Ég þekki það frá gamalli tíð að Framsóknarflokkurinn á aðrar rætur og mér hugnanlegri, en hann hefur lagt rækt við þessa hægri rót um of að mínu mati á umliðnum árum, að tala máli markaðshyggju og samkeppni, og gefið minna fyrir samvinnuna.
Hvað stjórnarandstöðuna áhrærir þá eru að sjálfsögðu einnig mismunandi áherslur þar uppi, enda erum við í þremur mismunandi stjórnmálaflokkum. Við erum með ólíkar áherslur í utanríkismálum, í umhverfismálum um margt, um það sem snýr að skipulagi almannaþjónustunnar, þar eru áherslur um margt mismunandi, en um eitt höfum við sameinast og það er hið sögulega við daginn í dag og reyndar haustið allt. Við sammæltumst um það í upphafi þings að við mundum reyna að stilla saman strengi okkar um það sem við vildum ná fram á þinginu í vetur og færum síðan að hamra í aðdraganda komandi kosninga, nokkuð sem við vildum sammælast um að framkvæma á Íslandi. Og hvað er það? Það er að bæta hag þeirra hópa í þjóðfélaginu sem lakast standa. Út á það ganga tillögur okkar.
Hv. þm. Birkir J. Jónsson auglýsti ákaft og andheitt eftir tillögum stjórnarandstöðunnar, hvað hún vildi gera í skólamálum, í heilbrigðismálum og á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Á undanförnum árum höfum við lagt fram aragrúa tillagna á öllum þessum sviðum og þá ekki síst í umhverfismálum, atvinnumálum, byggðamálum og einnig hvað varðar rekstur almannaþjónustunnar. Við gætum staðið hér dögum saman og farið í gegnum það þannig að þær tillögur eru fyrir hendi.
Það sem við erum að segja í dag er þetta: Nú beinum við kröftum okkar að því að bæta kjör þeirra hópa sem lakast standa, þ.e. öryrkja, hópa aldraðra. Við viljum laga stöðu þessara hópa. Við viljum gera það með því að koma líka til móts við kröfur sem uppi hafa verið í þjóðfélaginu á undanförnum árum um að ekki eigi að refsa öryrkjanum eða hinum aldraða sem nýtur greiðslna úr almannatryggingum fyrir að afla tekna að því marki sem nú er gert. Samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að hækka frítekjumark vegna atvinnutekna nokkuð og fara með það í 300 þúsund kr. Það var ákveðið að flýta þeirri framkvæmd og svolítið skondið því að við heyrðum hæstv. heilbrigðisráðherra tala um það viku fyrir þá ákvörðun, áður en greint var frá þessu, að það kæmi ekki til greina. Sagt var í þessum þingstóli að það væri ekki á döfinni. En þegar fréttist af því að stjórnarandstaðan væri að sameinast um sínar tillögur, sem gera ekki ráð fyrir 300 þúsund heldur 900 þúsund kr. á ári, var ákveðið að flýta framkvæmd ríkisstjórnarinnar nokkuð.
Við hækkum tekjutrygginguna og einnig kjör fólks sem dvelur á öldrunarstofnunum. Það var gerð rækileg grein fyrir þessum tillögum í dag. Hv. þm. Jón Bjarnason gerði það prýðilega en hann er fyrir hönd stjórnarandstöðunnar 1. flutningsmaður að tillögunum. Stjórnarandstaðan stendur öll, vel að merkja, að þeim, hún vann þær í sumar undir forustu hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur. Við höfum öll sameinast um þessar tillögur, en þær tillögur sem hv. þm. Jón Bjarnason talaði fyrir í dag sem 1. flutningsmaður eru reistar á tillögum stjórnarandstöðunar frá því í haust.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð að sinni um fjárlagafrumvarpið. Það má vel vera að ég kveðji mér aftur hljóðs þegar lengra líður á umræðuna en til að aðrir þingmenn komist að ætla læt ég máli mínu lokið að sinni.