fjárlög 2007.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður snýr út úr orðum mínum mjög hraustlega.
Verkefnið sem þingsályktunartillagan er um, þ.e. að styrkja byggðina í Árneshreppi á Ströndum, var ekki verkefni sem hefði getað farið í gegnum tónlistarsjóð, leiklistarsjóð eða safnasjóð. (Gripið fram í.) Nei, nei. Sannleikurinn er auðvitað sá að ég er að tala um sjóðina sem við eigum sem hafa lagalegt hlutverk, sem löggjafinn er búinn að koma á og hefur ætlað ákveðið hlutverk. Það hlutverk er fjárlaganefnd að eyðileggja með því að taka úthlutanir til einstakra verkefna, safna, tónlistarverkefna, leiklistarverkefna til sín.
Ég er ekki að tala um að styrkja byggðir á Ströndum eða önnur verkefni sem er eðlilegt að fjárlaganefnd hafi — ég er ekki að tala um að taka eigi öll verkefni af fjárlaganefnd. Hv. þingmaður má ekki misskilja orð mín svo eða snúa svo út úr þeim. Hv. þingmaður má ekki vera svo skyni skroppinn að halda að öll verkefni fjárlaganefndar eigi að fara í einhverja lögbundna sjóði, það er ekki þannig. Ef hann hefur hlustað á mál mitt var ég að tala um tiltekin verkefni sem við erum búin að setja í ákveðinn farveg sem fjárlaganefnd er að skemma með þessum úthlutunum sínum.
Auðvitað viljum við öll sem hér erum inni standa vörð um hinar dreifðu byggðir. Ég mótmæli þeim hroka framsóknarmanna eins og það sé einkamál þeirra að styrkja hinar dreifðu byggðir. Það er ekki einkamál framsóknarmanna að gera það og þeir eru ekki þeir einu í þessum sal sem það vilja gera, það er mikill misskilningur hjá hv. þingmanni. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur flutt hverja tillöguna á fætur annarri sem er til þess fallin að styrkja hinar dreifðu byggðir. Margar af þeim hafa verið felldar af þeim meiri hluta sem hér ræður ríkjum. Hv. þingmaður skal því bara athuga um hvað hann er að tala og kalla hlutina sínum réttu nöfnum.