fjárlög 2007.
Frú forseti. Hv. þingmaður svaraði ekki spurningu minni um hvort við tækjum rekstur og stöðu stofnana aftur upp við 3. umr. fjárlaga. Ég vísa samt til orða sem féllu og voru bókuð í fjárlaganefnd um að það yrði gert. Ég geri því ráð fyrir að hv. þingmaður hafi ekki komist nógu langt í andsvari sínu. En ég treysti því að við tökum það líka þar upp.
Síðan varðandi vegamálin þá get ég ekki annað, frú forseti, en nefnt þær yfirlýsingar sem ráðherrar hafa gefið hér á undanförnum dögum, bæði ráðherra samgöngumála, fjármála og aðrir sem menn gætu haldið að væru ábyrgir í stjórnsýslunni, um vegaframkvæmdir, einkaframkvæmdir o.s.frv. Stórátak í vegamálum í einkaframkvæmd talaði hæstv. samgönguráðherra um núna í gær og hélt fjálglega ræðu um það. Ég veit ekki hvar sú pólitíska stefna hefur verið mörkuð að hann geti talað þannig. Að mínu viti hefur hæstv. samgönguráðherra ekkert umboð til að tala eins og hann gerði þegar hann var að lofa og gera ráð fyrir stórauknum vegaframkvæmdum í formi einkaframkvæmdar og þess háttar. Ég óska eftir því að þessi vegamál og loforð ráðherranna og yfirlýsingar í þeim efnum verði tekin fyrir í fjárlaganefnd og þeir krafðir þar skýringa um hverju sé verið að lofa. Við þurfum stórátak í samgöngumálum. Það gerum við á opinberum vettvangi en ekki með því að skera niður eins og gert hefur verið á undanförnum árum og koma síðan og lofa rétt fyrir kosningar.