fjárlög 2007.
Virðulegi forseti. Við hljótum þá að bíða spennt eftir því hver niðurstaðan verður. Ekki bara þingmenn á hinu háa Alþingi heldur einnig íbúar á Vesturlandi og íbúar á höfuðborgarsvæðinu.
Því eins og ég fór yfir í ræðu minni áðan þá hefur þetta sjúkrahús og starfsfólk þess staðið sig afskaplega vel. Þetta er fyrirmyndarheilbrigðisstofnun og hún gegnir mjög mikilvægu hlutverki, ekki bara á Akranesi heldur gegnir hún líka mikilvægu hlutverki fyrir fólk m.a. hér á höfuðborgarsvæðinu og að sjálfsögðu einnig í nágrannasveitarfélögunum.
Það væru gríðarleg vonbrigði, hygg ég, fyrir fjölmarga íbúa á þessum svæðum ef það færi nú svo að ekki yrði hægt að verða við þessum óskum sem eru mjög hógværar og vel rökstuddar. En við hljótum öll að bíða spennt með jákvæðu hugarfari og ég vona svo sannarlega að hv. formaður fjárlaganefndar hafi heyrt þessi orð mín og muni taka tillit til þeirra.