133. löggjafarþing — 35. fundur,  24. nóv. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[10:42]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þessi atkvæðagreiðsla er lýsandi fyrir þá möguleika sem skapast þegar efnahagslífið fær að blómstra og haldið er með ábyrgum hætti um ríkisfjármálin. Fjárlagafrumvarpið og tillögur meiri hlutans eru grundvöllur fyrir stærsta átaki síðari ára í að bæta kjör lífeyrisþega, fyrir stærsta átaki nokkru sinni til að lækka matvælaverð, fyrir gríðarlegri styrkingu í heilbrigðiskerfinu og fyrir mikla aukningu framlaga til framhaldsskóla og háskóla. Þetta gerum við á sama tíma og við skilum afgangi upp á 9 milljarða kr.

Ef við horfum til baka eitt ár þá gera áætlanir ráð fyrir því að ríkissjóður yrði næsta árið rekinn með 7 milljarða kr. halla. Viðsnúningurinn á þessum tíma er þessi. Fyrir vikið getum við farið í þessi stórverkefni en samt skilað afgangi og jafnframt tekist á við ný útgjöld sem voru ófyrirséð vegna brotthvarfs varnarliðsins.

Þeir sem ekki sjá þetta eru hreinlega blindir og grípa fram í stöðugt þegar aðrir reyna að gera grein fyrir atkvæði sínu. Þetta er góð staða og stjórn ríkisfjármála er ábyrg. Þetta er gott fjárlagafrumvarp og tillögurnar frá stjórnarmeirihlutanum eru góðar.