fjárlög 2007.
Frú forseti. Hér erum við að leggja til að öryrkjar geti unnið sér inn 75 þús. kr. á mánuði án þess að það skerði bætur þeirra og þá geti þeir valið milli þeirrar reglu og hinnar sem fyrir er í almannatryggingunum. Þetta kæmi þeim best sem eru fátækastir, þeim sem hafa minnst. Ríkisstjórnin ætlaði ekkert að gera fyrir þennan hóp. Hún skilaði þessum hópi auðu. Þetta segir alla söguna um það hvernig þessi ríkisstjórn er gagnvart þeim sem minnst hafa og áherslum hennar gagnvart öryrkjum og málefnum lífeyrisþega. Ég segi já.