133. löggjafarþing — 35. fundur,  24. nóv. 2006.

tekjuskattur.

22. mál
[12:56]
Hlusta

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmanni fannst ég hafa verið fullharkaleg við formann efnahags- og viðskiptanefndar af því að hann hefði verið sá sem hefði leitt saman deiluaðila til að fá einhverja aðra niðurstöðu. Ég held að hv. þingmaður muni nú ekki hvernig þetta gekk fyrir sig í efnahags- og viðskiptanefnd, það var eiginlega strax á fyrsta fundi nefndarinnar sem ég óskaði eftir því að deiluaðilar mundu nýta tímann og setjast yfir það að ná sameiginlegri niðurstöðu í þessu máli. Mig minnir að svar formanns efnahags- og viðskiptanefndar hafi verið það að málið væri hjá efnahags- og viðskiptanefnd sem ætti að afgreiða það þannig að það væri óþarfi að láta deiluaðila fara að setjast yfir þetta þó að lokin á síðasta degi sem nefndin fjallaði um málið hefðu að vísu orðið þau að hann varð við ítrekaðri kröfu okkar í stjórnarandstöðunni um það. Þannig kom inn smáleiðrétting til hækkunar á eignastuðlinum.

Hv. þingmaður gumar mikið af því að nú sé verið að setja 500 millj. í vaxtabótakerfið til að leiðrétta þetta en hún verður líka að muna að á árunum 2003–2006 hefur vaxtabótakerfið verið skert um 1.400 millj., 1,4 milljarða, sem hefur komið mjög hart niður á fólki sem hún ber hér fyrir brjósti eins og fram kom í þessum ræðustól, þ.e. fólki með lágar og meðaltekjur, þessi flata skerðing sem var farið í svo að dæmi sé tekið. Ríkisstjórnin hefur verið mjög flink að finna upp margvíslegar leiðir til að skerða vaxtabótakerfið en það er helst fólk með lágar og meðaltekjur sem nýtur góðs af vaxtabótakerfinu þó að dæmi séu um annað. Ég er sannarlega hlynnt því að fara allar leiðir sem hægt er til að bæta vaxtabótakerfið og að það gagnist best fólki með lágar og meðaltekjur. Það var einmitt það sem var lagt upp með þegar vaxtabótakerfið fór af stað en þessi ríkisstjórn er á góðri leið með að eyðileggja vaxtabótakerfið alveg eins og hún hefur verið mjög ötul við að eyðileggja fæðingarorlofskerfið. Gæti ég haft langt mál (Forseti hringir.) um það.