133. löggjafarþing — 35. fundur, 24. nóv. 2006.
tekjuskattur.
22. mál
Herra forseti. Hv. þingmaður er jafnaðarmaður og vill jafna kjör fólks. Hvað vill hann fara hátt með eignamörkin? Nú er gert ráð fyrir því að hjón sem eru með 12 millj. í nettó eigið fé eigi að geta fengið bætur úr velferðarkerfinu. Vill hv. þingmaður fara með þetta upp í 14, 17, 20 eða hvað? Einföld spurning.