stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég er í sjálfu sér alveg sammála því markmiði sem kemur fram hjá hæstv. ráðherra að þar sem um er að ræða almannaþjónustufyrirtæki eigi að greiða götu þess eins og best verður gert. Að því leytinu til hef ég síður en svo á móti því að það njóti skattfrelsis en þá finnst mér hins vegar að það sé umhendis að halda því fram að verið sé að færa þennan sjóð inn á svið þar sem umhverfi hans verði sem næst því sem ríkir á almennum fjármálamarkaði. Á þeim markaði ríkir sem betur fer ekki skattfrelsi heldur eru fjármálafyrirtæki í vaxandi mæli að reiða af höndum mjög mikilvægar skatttekjur. Ekki meira um það, frú forseti.
Svo langar mig bara, rökræðunnar vegna, að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé þá þannig að eitt tiltekið fyrirtæki, eins og Orkuveita Reykjavíkur, gæti fræðilega eignast allt hlutaféð. Hæstv. ráðherra svaraði því í reynd með jáyrði. Þá langar mig til þess að spyrja hann: Hver fer þá í slíku tilviki með hin 85 prósentin af atkvæðisréttinum ef við erum að tala um kringumstæður þar sem eitt sveitarfélag eða eitt fyrirtæki í eigu sveitarfélags á allan sjóðinn en hefur einungis 15% af atkvæðisrétti? Einhvers staðar hljóta hin 85 prósentin að liggja. Ég er viss um að þessi hæstv. ráðherra, sem hefur sýnt það með verkum sínum að hugsa fyrir öllu, hefur líka hugsað fyrir þessum möguleika.