stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Frú forseti. Mér er tjáð að vinstri græn í sveitarstjórnum hafi verið hlynnt þessu. Ég veit ekki um neinn sem er sérstaklega á móti því að sveitarfélögin eigi þetta. (Gripið fram í.) Það að menn selji sinn hlut þýðir væntanlega að hann hafi orðið einhvers virði í höndum sveitarfélaganna. Ef einhver vill kaupa allan sjóðinn hækkar verðið bara þeim mun meira. Það er enginn neyddur til að selja.
Í þeim sveitarfélögum sem eru sniðug og bíða með að selja hækkar verðið bara og hækkar ef einhver vill endilega komast yfir sjóðinn. Það er jákvætt fyrir viðkomandi sveitarfélög og íbúa þeirra.