133. löggjafarþing — 36. fundur,  24. nóv. 2006.

skattlagning lífeyrisgreiðslna.

382. mál
[18:11]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er eins og hv. þingmaður hafi ekki gert sér grein fyrir að stór hluti af eigum lífeyrissjóðanna er orðinn til vegna starfsemi lífeyrissjóðanna líka, vegna fjárfestinga, vegna þess að menn hafa unnið með þessa peninga. Allt sem út úr þeim er greitt er hins vegar skattlagt með þessum hætti. Það er því ekki bara um það að ræða að iðgjöldin sem koma þar inn hafi verið ósköttuð heldur er verið að skatta allt sem út úr þeim kemur.

Ég verð að segja það alveg eins og er varðandi lífeyrissjóðina, sem eru að létta okinu af ríkissjóði sem ríkissjóður átti að hafa í ellitryggingunum, og það virðist stefna í að það verði endanlegt einhvern tíma í framtíðinni miðað við þá stefnu sem þetta virðist hafa núna, að mér finnst ekkert mikið þó að ríkissjóður leggi það til lífeyrissjóðanna að skatta þá ekki.