skattlagning lífeyrisgreiðslna.
Herra forseti. Ég taldi mig fara nákvæmlega í gegnum það að ef maðurinn borgar ekki skatt af þúsund krónunum í lífeyrissjóðnum þá er það alltaf 66% meira sem hann á þar heldur en ef hann er með 600 kr. til ráðstöfunar eftir skatt til að kaupa spariskírteini eða ávaxta sjálfur. Hann ávaxtar eins og lífeyrissjóðurinn. Hann lætur fé sitt vinna fyrir sig eins og lífeyrissjóðurinn. Lífeyrissjóðurinn er ekkert annað en að ná ávöxtun á sitt fé og féð er allt saman óskattað, líka ávöxtunin.
Það eina sem ég benti á er að lífeyrissjóðurinn er enn betri vegna þess að hann borgar ekki fjármagnstekjuskatt af fjármagnstekjum sínum en allar tekjur lífeyrissjóðsins eru náttúrlega fjármagnstekjur. Þegar hann greiðir það út sem lífeyri hefur iðgjaldið vaxið en iðgjaldið var aldrei skattað, það er málið.
Tillagan byggir því algjörlega á misskilningi sem og umræðan í þjóðfélaginu. Hún byggir algjörlega á misskilningi. Það er eðlilegt að fé sem hefur ekki verið skattað sé skattað þegar það er greitt út, það er frestun á skattlagningunni. Ég geri ráð fyrir að menn meini vel með tillögunni, það er ekki spurning, en menn þurfa að átta sig á um hvað málið snýst.
Svo benti ég á að ef þetta yrði gert kæmi upp alveg óskaplega mikið félagslegt óréttlæti sem menn hafa verið að benda á gagnvart fólki sem hefur miklar fjármagnstekjur, að þeir sem hafa hæstan lífeyrinn mundu borga 10% af því en þeir sem eru með lægstan lífeyrinn mundu þurfa að borga 10% af því en slyppu með að borga skatta af næstum allri upphæðinni út af frítekjumarkinu í venjulegum tekjuskatti.