fjáraukalög 2006.
Virðulegi forseti. Ég spurði hv. þingmann hvort hann gæti fundið orðum sínum stað þar sem hann fullyrðir að ég væri að hælast um af góðverkum. Ég bað hann um að finna orðum sínum stað. Hann virtist ekki geta það. Ég skora á hann að reyna aftur.
Ég er alveg viss um, virðulegi forseti, að í málvitund allra Íslendinga er það svo, að þeir menn sem alltaf lyppast niður, þeir menn sem hafa ekki í sér eina döngun, þeir menn sem alltaf lúffa, það eru menn sem í almennri vitund eru bara druslur. Ég misskil því hv. þingmann ekki þegar hann lýsir mér og félögum mínum og nefnir með nafni við slíkar lýsingar.
Ég fer aftur yfir þetta. Ég spyr hv. þingmann aftur. Hvaða nauð rak hann til þessa orðbragðs? Hvaða nauð var það sem rak hann til þess að koma hér upp í ræðustól á hv. Alþingi, hafandi þessi ummæli um félaga sína?