133. löggjafarþing — 38. fundur,  30. nóv. 2006.

fjáraukalög 2006.

47. mál
[18:05]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ágætt að hv. þingmaður telji að það eigi að grípa strax til aðgerða. Það hefur verið gert nú þegar og út af fyrir sig er ekkert frekar um það að segja. Það er unnið að undirbúningi, hönnun og athugun á því sem þarf að gera þannig að það hefur verið gripið, og fyrir löngu síðan, til aðgerða en þær eru ef til vill umfangsmeiri en menn höfðu búist við. Þetta er hin blákalda staðreynd, það hafa verið gefin fyrirmæli um að ganga til þeirra framkvæmda sem nauðsynlegt er til að hægt sé að halda úti þessari ferjuleið. Ég vænti þess bara að hv. þm. Jón Bjarnason styðji samgönguráðherrann í þeim áformum og aðgerðum sem nauðsynlegt er að hafa í frammi þarna.