133. löggjafarþing — 38. fundur,  30. nóv. 2006.

ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

376. mál
[18:14]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það var mikið bögglauppboð þegar ríkisstjórnin tilkynnti ráðstöfun silfursins úr sölu Landssímans. Menn slógu mjög um sig og ætluðu að gera góðverkin hér og góðverkin þar. Eitt af því sem menn gerðu var að eyrnamerkja fjárveitingar ýmsum þörfum samgönguframkvæmdum. Menn glöddust eðlilega yfir því, ekki síst á þeim svæðum sem lengi hafa beðið úrlausnar og hafa mátt sæta því að verk hafa dregist, jafnvel árum saman, sem menn hafa bundið miklar vonir við að yrði ráðist í og gjarnan talið brýnasta viðfangsefni til að bæta skilyrði og aðstæður byggðar, ekki síst á jaðarsvæðum.

Það fer að verða þörf á því að gera heildarúttekt á því og fá fram greinargerð um það hvernig þessi hæstv. ríkisstjórn hefur hringlað með framkvæmdafé, sérstaklega til samgöngumála, fram og aftur á undanförnu kjörtímabili. Ég veit eiginlega satt best að segja ekki hvað stendur eftir af upphaflegri samgönguáætlun hæstv. samgönguráðherra og þeim lögmælta farvegi sem framkvæmdir á þessu sviði eiga að lúta. Nú er það þannig að í vegalögum og lögum um samræmda samgönguáætlun er lagt niður ákveðið verklag þar sem Alþingi á að koma að því á grundvelli tillögu frá samgönguráðherra að ákveða framkvæmdaröð í vegamálum, flugmálum og höfnum. Þetta byggir á ýmsum gömlum hefðum um að þingmannahópar kjördæma komi að þessu verki.

Á seinni árum hefur það hins vegar orðið æ algengara að þetta verklag er einfaldlega klippt úr sambandi. Stærri og stærri hluti ákvarðana um framkvæmdir í samgöngumálunum er kokkaður við ríkisstjórnarborðið með því að annaðhvort skera niður áður ákveðnar framkvæmdir sem Alþingi hefur samþykkt eða taka inn nýjar á grundvelli þess að ríkisstjórnin af örlæti sínu hafi fundið einhvers staðar peninga til að ráðast í slíkar framkvæmdir. Heil jarðgöng hafa skotið upp kollinum og farið í framkvæmd á örfáum mánuðum sem alls ekki voru inni á neinni samgönguáætlun á sama tíma og önnur verkefni sem búið er að bíða lengi eftir og menn hafa tekist á um að koma inn í röðina eru sett út eða þeim er frestað. Ég fer fram á það, frú forseti, að samgönguráðherra leggi fyrir Alþingi greinargerð þar sem þetta er allt saman sett í töflur eða samanburðarhæf gögn, þ.e. framkvæmdirnar sem menn hafa ýmist flýtt eða skorið niður, fé sem menn hafa aukið í eða dregið til baka vegna þenslu o.s.frv. Er einhver hér í salnum sem botnar almennilega í þessu, kann þetta? Ég efast um að hæstv. samgönguráðherra geri það sjálfur og er þá mikið sagt. Ég verð að játa að þó að ég hafi fylgst þokkalega með þessum málum á ég orðið æ erfiðara með að hafa einhverja yfirsýn yfir það hvernig gefið er í eða stigið á bremsurnar á víxl.

Hvernig í ósköpunum stendur á því að þessi eini framkvæmdaflokkur ríkisins, vegaspottarnir, sérstaklega í afskekktum byggðum, skuli vera stóri stillirofinn í hagkerfinu? Okkur er talin trú um að það standi allt og falli með því að flýta eða fresta nokkurra tuga eða nokkurra hundruða milljóna króna vegaframkvæmdum. Mér hefur ekki sýnst á ýmsum öðrum sviðum að það hafi mikil efnahagsáhrif þó að menn hlaupi til með milljarðana og/eða, ef við berum það saman við aðrar stærðir í hagkerfinu, það sem bankarnir dæla inn í hagkerfið eða draga út úr því.

Ég bara verð að segja það, frú forseti, að mér finnst ákaflega tilfinnanlegt og dapurlegt að sjá t.d. enn á ný höggvið í sama knérunn og flutt til fjármagn, fjárveitingum til langþráðra úrbóta í samgöngumálum á Vestfjörðum og norðausturhorni landsins bakkað. Gátu ekki hæstv. ráðherrar látið sér detta eitthvað annað í hug en að fara enn að hringla með þessa hluti og bera það fyrir sig að verkin hafi kannski ekki gengið alveg jafnhratt fram og til stóð? Hvað með það? Þá bíða fjárveitingarnar eins og alsiða er í hinum opinbera geira, fjárveitingin bíður þá eyrnamerkt eftir viðkomandi framkvæmd, hún er til staðar og það er engin tortryggni og engin óvissa sköpuð með því. Síðan er verkið boðið út eins fljótt og það er hægt.

Mér eru það mjög mikil vonbrigði, svo að ég tali t.d. um það verkefni sem er í Norðausturkjördæmi, að af svonefndri Hófaskarðsleið milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar skuli vera teknar 300 millj. sem áttu að vera þar til ráðstöfunar úr þessu silfri á næsta ári og færðar yfir á árið 2008. Er það vegna þenslunnar á norðausturhorni landsins sem ríkisstjórnin grípur til þessa ráðs? Gæti hæstv. forsætisráðherra Geir Hilmar Haarde komið hérna upp fyrir mig og farið yfir það hvort þenslan á norðausturhorninu, t.d. í nágrenni við Raufarhöfn, hafi verið til stórlegra vandræða? Þetta er hluti af því að koma Raufarhöfn loksins í almennilegar vegasamgöngur, vegur sem þverar Hólaheiði um Hófaskarð og leggur til Raufarhafnar.

Ég hygg að hið sama eigi við um framkvæmdir í Arnkötludal eða Tröllatunguheiði vestra, að mönnum þyki nú eftir mikla baráttu fyrir því að koma þeirri framkvæmd inn, sem mjög margt mælir satt best að segja með, til að tengja svæðin beggja megin á Vestfjarðakjálkanum, að þar skuli svo borið niður þó að þar sé farið aðeins vægar í sakirnar en þegar Hófaskarðsleiðin á í hlut. Hver eru rökin í þessu? Veit hæstv. forsætisráðherra, eða hæstv. samgönguráðherra, ekki að t.d. í tilviki Hófaskarðsleiðar er um að ræða stórt verkefni sem er nokkurn veginn vitað að taki 2–3 ár og verður boðið út í einu lagi? Hvaða tilgangi þjónar að taka af því fé og færa milli ára öðrum en þeim að skapa tortryggni og valda mönnum óróleika á þessu svæði? Það á sjálfsagt eftir að reyna að fara með hefðbundna vafninga um að verkið hafi tafist í undirbúningi o.s.frv. en það eru engin rök í mínum huga vegna þess að, eins og ég segi, þá bíður bara fjárveitingin.

Komi nú að því, sem vonandi verður, að hægt verði að bjóða þetta út öðru hvorum megin við áramótin vitum við vel að verktakar hafa heilmikið svigrúm til að vinna verkin hraðar, sérstaklega ef nægir fjármunir eru til að greiða inn á verkið strax á fyrri hluta framkvæmdatímans. Heimamenn þarna bundu vonir við að leiðin yrði akstursfær undir haust 2008 þannig að menn yrðu einum vetri nær því að fá þessar heilsárssamgöngur milli byggðanna en ella verður. Það að færa féð af árinu 2007 yfir á 2008 getur auðvitað torveldað þetta auk þess sem ekki er nægt pláss fyrir þá lausafjármuni á þessari leið því að hún er þegar búin að sæta miklum töfum. Ef við tökum norðausturleiðina frá Húsavík eða þess vegna úr Ljósavatnsskarði með ströndinni austur um og upp á Hérað, og Vopnafjarðarheiði þar með talin, er nú ærið handtak þar eftir. Það er ekki eins og að það séu vandræði að færa þá til fé og vinna einhverja aðra áfanga á leiðinni fyrir það sem ekki yrði þörf fyrir á árinu 2007 á þessari leið. Auðvitað er þetta ákveðin frestun framkvæmda á þessu svæði. Það er sköpuð óvissa og það er boðið upp á það að menn geti tekist á um þessa hluti eitt ár enn, sem sagt á næsta ári verði þá aftur opnað á að takast á um þessa hluti.

Ég verð að segja alveg eins og er að ég kaupi ekki rök hæstv. ríkisstjórnar, a.m.k. ekki hvað varðar þessar tiltölulega litlu fjárhæðir sem eiga að renna til almennra vegaframkvæmda á jaðarsvæðum landsins. Það má auðvitað segja að t.d. stórframkvæmd upp á 1,5 milljarða í þenslunni á suðvesturhorninu hafi talsverða skírskotun til þenslunnar, hvort sem það er Sundabraut eða einhver tvöföldun eða eitthvað annað hér á svæðinu. En geta menn ekki skilið tilfinningar þeirra sem sæta því aftur og aftur að framkvæmdir í afskekktum landshlutum og á jaðarsvæðum eru meðhöndlaðar svona á sama tíma og ýmsar brýnar framkvæmdir á suðvesturhorninu eru settar í flýtimeðferð, boðnar út jafnvel áður en þær koma inn á samgönguáætlun, og þá bera menn fyrir sig vaxandi umferðarþunga, umferðaröryggi eða annað því um líkt? Ég get ekki sagt annað en að mér finnst þetta vera óskaplega rislágt hjá hæstv. ríkisstjórn. Menn hugsa þetta kannski þannig að það muni ekki svo mikið um þá kjósendur sem þarna búa af því að það vekur athygli manna að menn láta sig hafa þetta, jafnvel á kosningavetri. Það er ástæða til að óska stjórnarþingmönnunum til hamingju með að fara með þetta veganesti og selja mönnum það á þessu svæði, en ekki finnst mér mjög hátt á þessu risið, satt best að segja.

Maður er ærið hugsi yfir þessum vinnubrögðum og þeim hefðum sem smátt og smátt hafa skapast í þessum efnum, að nota niðurskurð eða þá allt í einu ákvarðanir sem menn slá um sig með og halda gjarnan blaðamannafundi til að tilkynna að nú hafi þeir af gæsku sinni ákveðið að stórauka framkvæmdir með þessum eða hinum viðbótarfjármununum sem eru komnir af sölu ríkisfyrirtækja eða einhverju öðru slíku. Hvað er ríkisstjórnin búin að halda oft blaðamannafundi þar sem hún hefur stært sig af því að nú verði heldur betur gefið í? Og hvað er hún oft búin að draga þá hluti aftur til baka? Þetta er eins og jójó, eins og krakkarnir segja, þetta er jójó ríkisstjórnarinnar og vegamálin verða alltaf fórnarlambið alveg sérstaklega. Það á t.d. alls ekkert að auka þenslu að færa fjármuni í hina áttina, varðandi varðskip eða Fjarskiptasjóð eða annað því um líkt. Það er ekki þensluhvetjandi þótt milljarður sé færður fram en það er nauðsynlegt að bakka 1,5 milljörðum eða hvað það nú er í þessu tilviki.

Ég legg til að a.m.k. þessir liðir frumvarpsins verði einfaldlega teknir út og að í öllu falli fái að standa framkvæmdirnar á þessum jaðarsvæðum landsins, Vestfjörðum og norðausturhorninu, sem sannanlega hafa ekki orðið mikið vör við þensluna sem ríkisstjórnin hefur í þessu tilviki svona miklar áhyggjur af. Sé það svo að verkin hafi ekki sjálf strax þörf fyrir allt þetta fé er venjan sú að svæðið fær að njóta þess og þingmannahópar kjördæmanna hafa þá svigrúm til að lána þær fjárveitingar milli ára og milli verka. Hvers vegna á að taka það svigrúm af þingmönnum Norðvest. og Norðaust. í þessu tilviki? Hver eru rökin fyrir því? Við vitum það öll sem þekkjum þessa hluti og höfum komið eitthvað nálægt þeim — sumir kannski í 24 ár eins og sá sem hér talar — að þessum peningum verður þá ekki ráðstafað annað, þeir verða ekki notaðir til að flýta framkvæmdum sem kannski væri hægt að gera og endurgreiða svo yfir í verkið sem þeir eru merktir. Það er ósiður að hringla svona með þetta þegar búið er að setja það niður í lög eða samgönguáætlun og það hafa skapast væntingar um að þessir hlutir standi. Hvaða virðingu á fólk að bera fyrir framkvæmdaáætlun ríkisins ef svona er alltaf farið með hlutina, ef það er hringlað með þetta endalaust fram og til baka?

Ég vil meina að forveri núverandi hæstv. samgönguráðherra, stórvinur minn, 2. þm. Norðaust., Halldór Blöndal, hafi því miður gert sig sekan um að fara dálítið inn á þessa braut á sínum embættisferli sem samgönguráðherra en ég fullyrði að núverandi samgönguráðherra er að slá hann út. Hann er að verða heimsmeistari í þessum æfingum fram og til baka, þessum jójó-leik með framkvæmdafé í vegamálum. Það er ekki í samræmi við það verklag sem er lögbundið og hefðarhelgað hér að þessir hlutir séu teknir fram hjá Alþingi með aðferðum af því tagi sem hæstv. ríkisstjórn hefur seilst til að gera æ ofan í æ. Ef áframhald á að verða á þessu er bara best að ríkisstjórnin taki alveg við þessu og menn séu ekkert að þykjast með það að Alþingi hafi hér einhverju hlutverki að gegna og það eigi að taka eitthvert mark á samræmdri samgönguáætlun. Það er þá bara að verða eins og hver annar brandari ef þetta er endalaust gert svona.

Ég vil líka meina, frú forseti, að það sé reginmisskilningur að almennar vegaframkvæmdir af þeirri stærðargráðu að minni og meðalstórir verktakar ráða vel við þær séu inni í einhverri samkeppni við eða hafi áhrif á þenslu sem fyrst og fremst byggist annars vegar á stórverktökunum, risaverktökunum sem eru í risaframkvæmdunum, og svo þá þenslu í almennum byggingariðnaði. Jarðvinna og efnisflutningar í almennri vegagerð eru ekki sérstaklega mannaflafrek verkefni. Það liggur þegar fyrir að verð í tilboðum lækka nú á nýjan leik vegna þess að það horfir til minni verkefna eða er greinilega meira svigrúm fyrir verktaka af þessari stærðargráðu að taka að sér verk. Það er engin sérstök ástæða til að ætla að í verk af þessu tagi sem yrðu boðin út núna á rólegum tíma öðru hvorum megin áramótanna fengjust ekki ágæt tilboð. Síðan bara réðist hver framkvæmdahraðinn gæti orðið.

Ég held að efnisrökin fyrir þessu séu ákaflega veik og í raun og veru alls ekki til staðar, sérstaklega ekki þegar kemur að þessum minni framkvæmdum í almennri vegagerð úti á jaðarsvæðum landsins. Þetta er möndl, frú forseti, sem mér finnst að ríkisstjórnin eigi ekki að smækka sig með. Hún á bara að draga þetta til baka, a.m.k. þessa liði framkvæmdarinnar, og ég áskil mér allan rétt til að hafa á því skoðun og beita mér fyrir því hér í þinginu að þetta verði lagfært. Það er að sjálfsögðu hægt að láta ákvæði sérlaga standa í þessum efnum hvað sem fjárlögunum líður og leiðrétta það þá aftur eftir á með fjáraukalögum ef svo ber undir.

Ég spyr líka: Er þess ekki að vænta að hæstv. samgönguráðherra komi hér með eitthvað bitastæðara, þ.e. einhverja heildarendurskoðun á samgönguáætlun eða vegáætlun? Hefði ekki verið nær að takast á við þessa hluti þar? Af hverju þarf að rjúka í þetta núna? Var ekki hægt að leyfa þessum hlutum að standa eins og þeir voru, a.m.k. hvað varðar þessar almennu framkvæmdir í vegagerð, og útkljá það mál hér á útmánuðum?