133. löggjafarþing — 39. fundur,  4. des. 2006.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá þingflokksformanni sjálfstæðismanna, Arnbjörgu Sveinsdóttur:

„Þar eð Björn Bjarnason, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Katrín Fjeldsted læknir, taki sæti á Alþingi á meðan.“

Katrín Fjeldsted hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.