133. löggjafarþing — 39. fundur,  4. des. 2006.

forsendur fyrir stuðningi við innrásina í Írak.

[15:04]
Hlusta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum og svo sem hér á þingi líka kom það fram í ræðu nýlega hjá formanni Framsóknarflokksins að forsendur fyrir þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að styðja innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak hefðu verið rangar og að ákvarðanaferlinu í þessu máli hefði verið ábótavant. Forsendur voru rangar, það var vitað þá þegar er innrásin var gerð og er kannski rétt að rifja það upp í þessu sambandi að Wolfowitz, sem er núna bankastjóri Alþjóðabankans, sagði í maí 2003, með leyfi forseta:

„Af stjórnkerfislegum ástæðum komum við okkur saman um eina ástæðu, gereyðingarvopnin, vegna þess að það var eina ástæðan sem allir gátu verið sammála um.“ — Það var þess vegna sem menn ákváðu að nota gereyðingarvopnin sem átyllu.

Hæstv. dómsmálaráðherra Björn Bjarnason hefur sagt á heimasíðu sinni að ríkisstjórnin hafi haldið velli þrátt fyrir það að hún hafi stutt innrásina í Írak — sem rétt er. Það er auðvitað ekki of seint að fella ríkisstjórnina, það er hægt að gera það í vor, en það er heldur ekki of seint að iðrast. Það er rétt að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort ekki sé kominn tími til að hann, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, iðrist þessarar ákvörðunar og biðjist afsökunar á henni.