133. löggjafarþing — 39. fundur,  4. des. 2006.

boð lyfjafyrirtækja.

[15:21]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Það er rétt sem kom hér fram að á Íslandi notum við talsvert miklu meira af geðlyfjum en nágrannaríkin. Við notum reyndar 60% meira en Danir og Norðmenn og 30% meira en Svíar. Lyf eru almennt frekar dýr á Íslandi. Frumlyf eru á sambærilegu verði en samheitalyf eru talsvert miklu dýrari.

Mér finnst þetta mjög sérstakt, þetta sem kom upp með þennan jólafund. Þær upplýsingar sem ég hef eru á þá leið, og það hefur komið fram í fjölmiðlum, að þarna hefur lyfjafyrirtækið Eli Lilly boðið geðlæknafélaginu til fundar. Mér skilst að þetta boð frá sölustjóra lyfjafyrirtækisins hafi verið sent út á bréfhaus Geðlæknafélags Íslands og lyfjafyrirtækisins með tölvupósti á læknana og að ekki hafi komið fram að þarna ætti að fara fram fræðsla. Þetta eru þær upplýsingar sem ég hef úr fjölmiðlum.

Læknafélag Íslands sem þessir læknar eru líklega allir meira eða minna félagar í hefur ásamt Frumtaki, sem eru frumlyfjaframleiðendur, gert samkomulag um að það sé í lagi að lyfjafyrirtæki greiði fyrir svona fundi eða styrki þá svo framarlega sem þetta séu fræðslufundir og það komi skýrt fram í boðinu. Mér skilst að það hafi ekki komið fram í þessu tilviki.

Ég tel mjög mikilvægt að við skerum á öll hugsanleg hagsmunatengsl. Við teljum að lyfjafyrirtæki noti u.þ.b. 400 millj. kr. á Íslandi á ári til að markaðssetja lyf. Þetta eru auglýsingar og ýmislegt annað sem menn beita til að markaðssetja lyfin sín. Það eru geysilegir hagsmunir í húfi. Við kaupum geðlyf fyrir um 2 milljarða (Forseti hringir.) á ári hjá Tryggingastofnun.