133. löggjafarþing — 39. fundur,  4. des. 2006.

tvöföldun Suðurlandsvegar.

[15:29]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ef ég skil orð hæstv. samgönguráðherra rétt er hann að kynna hér stefnubreytingu í málinu. Í umræðum á þingi fyrir nokkrum vikum við hv. þm. Jón Gunnarsson og fleiri þingmenn hér í þingsal var ekki annað á hæstv. samgönguráðherra að skilja en að 2+1 vegur yrði látinn duga, það yrðu framkvæmdir eins og Vegagerðin kynnti, en nú tekur hann undir að það komi til greina að ráðast strax í gerð á tvöföldum vegi og að einkaframkvæmd komi þar til greina.

Undir það tek ég. Það eru mín viðhorf og margra annarra. Ég bið hæstv. samgönguráðherra þá að staðfesta að hann sé að kynna hér stefnubreytingu í málinu, að það sé pólitískur vilji fyrir því í ríkisstjórninni að ráðast í tvöföldun á Suðurlandsvegi, fjórar aðskildar akreinar, en ekki látin duga sú ófullnægjandi bráðabirgðalausn sem felst í svokölluðum 2+1 vegi til ársins 2030 eins og Vegagerðin kynnir og hæstv. ráðherra hefur hingað til talað fyrir. Um leið hljóta þessi skilaboð að vekja vonir og hæstv. ráðherra skýrir þau þá hér.