133. löggjafarþing — 39. fundur,  4. des. 2006.

fjáraukalög 2006.

47. mál
[15:49]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég vil við upphaf atkvæðaskýringar minnar þakka allri fjárlaganefnd fyrir mjög vel unnin störf og samstillt átak í að klára m.a. fjáraukalög fyrir árið 2006. Hér er um að ræða mjög gott frumvarp sem skilar 45 milljarða kr. afgangi í ríkissjóð þannig að við höldum áfram á þeirri vegferð að greiða niður skuldir ríkisins en auk þess er það stefna meiri hlutans á hv. Alþingi að standa vörð um velferðarmálin og það endurspeglast í því frumvarpi sem við greiðum hér atkvæði um. Það er kveðið á um það að setja 860 millj. sérstaklega til öldrunarheimila í landinu, 1.000 millj. til Landspítala – háskólasjúkrahúss og 100 millj. til Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Þessar stofnanir, hæstv. forseti, gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í samfélagi okkar. Því er það ábyrgðarhluti af stjórnarandastöðunni hér á þingi að hún vilji ekki leggjast á sveif með okkur stjórnarliðum í að bæta stöðu þessara stofnana í fjáraukalögum fyrir árið 2006. Þessar stofnanir, eins og ég sagði áðan, gegna mjög veigamiklu hlutverki og við þurfum að bæta stöðu þeirra til að gera rekstrarafkomu þessara stofnana á næsta ári betri en ella hefði orðið.

Við munum halda áfram að standa vörð um velferðarkerfið verði þetta fjáraukalagafrumvarp samþykkt. Við munum jafnframt halda áfram að lækka álögur á heimilin í landinu með lækkun skatta á heimilin í landinu með hækkun á barnabótum þannig að við erum að gera allt í einu. Við erum að lækka skuldir ríkissjóðs, auka framlög til velferðarmála og bæta hag allra fjölskyldna í landinu. Við munum halda áfram á þeirri leið í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007 sem við munum ræða á Alþingi á morgun.