vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.
Frú forseti. Samfylkingin lofaði í síðustu kosningum að lækka matarskatt um helming. Eftir þær kosningar hefur Samfylkingin lagt fram frumvarp um það á hverju einasta ári. Hins vegar hefur flokkur hæstv. fjármálaráðherra í hvert einasta skipti fellt það frumvarp, nákvæmlega sömu breytingar og hann leggur til núna á lokaspretti kjörtímabilsins.
En með því að skilja eftir tollana, sem eru að mínu mati stóra málið, er ljóst að þetta mál er illa undirbúið. Auk þess virðist eitthvert ósætti innan ríkisstjórnarinnar. Við þekkjum afstöðu hæstv. landbúnaðarráðherra sem virðist vera ráðherra neytendamála í augum ríkisstjórnarinnar. Það er ljóst að ef gert er ráð fyrir tollalækkunum á næsta ári þá ættu þær að koma í fjárlögum. Hvernig stendur á því, hæstv. fjármálaráðherra, að stjórnin hefur ekki tryggt það að þær tollalækkanir komi fram í fjárlögunum eða í þessu frumvarpi? Er málið það illa undirbúið? Brá ykkur það mikið þegar Samfylkingin tók frumkvæðið í haust og lagði fram metnaðarfullan pakka (Forseti hringir.) sem mundi lækka matvælaverð um helmingi hærri upphæð en ríkisstjórnarflokkarnir ætla að gera?
(Forseti (SP): Forseti vill biðja hv. ræðumenn um að virða þann tíma sem er ætlaður til andsvara.)