133. löggjafarþing — 39. fundur,  4. des. 2006.

vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.

416. mál
[16:17]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Enn vilja fleiri Lilju kveðið hafa og er út af fyrir sig ekkert skrýtið þótt menn vilji hafa uppi orð um það eftir að hafa kannski sjálfir svarað í símann á skrifstofu Samfylkingarinnar um að hún hafi það ekki á stefnuskrá sinni að lækka virðisaukaskatt af matvælum. (Gripið fram í: Það var annar.) Var það annar, hv. þingmaður? Ég get aldrei munað hver þeirra það var.

En varðandi útreikningana þá held ég að það sé nú — jú, það getur vel verið, það er ekki oft sem menn biðja um það í framsöguræðu að beðið sé með afgreiða ákveðna hluti. En það getur vel verið að menn hafi almennt ekki haft þá hógværð til að bera, ef þeir finna að hlutirnir eru kannski að misskiljast eða vekja viðbrögð sem ekki var von á eða væru ekki réttlætanleg og vilji er fyrir hendi til að gera hlutina þannig að samstaða sé um, ef manni (Forseti hringir.) er þá veitt það á neikvæðan hátt þegar beðið er um að þeir verði skoðaðir frekar þá finnst mér það afar einkennilegt, frú forseti.