133. löggjafarþing — 39. fundur,  4. des. 2006.

vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.

416. mál
[16:50]
Hlusta

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fagna því að hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var örlítið jákvæðari í þessu svari en í ræðu sinni áðan. Ég held að allir þingmenn, bæði samfylkingarmenn og aðrir, ég veit raunar ekki um afstöðu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, en ég held að allir aðrir þingflokkar ættu að geta fagnað þessu frumvarpi og þeim breytingum sem þar eru boðaðar.

Ég held að það sé afskaplega mikilvægt að hafa í huga, að hér er um mikilvægt skref að ræða til að bæta lífskjörin í landinu. Það er mikilvægt að ná fram þessari breytingu á skattlagningu til þess að efla hag heimilanna. Taka má undir það sem kom fram í svari hv. þm. Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur áðan, að mikilvægt er auðvitað að slíkar breytingar skili sér út í verðlagið og það verði eftirlit með því að þær komist alla leið.

Hvað varðar þann þátt sem snýr að vörugjöldum og tollum er ljóst að verið er að gera tillögur um verulegar breytingar varðandi vörugjöldin þó ég og sennilega fleiri þingmenn gætum hugsað okkur að ganga lengra í þeim efnum.

Ég segi líka, eins og hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, að ég vildi sjá meiri breytingar á tollunum í þessu sambandi. Það er hins vegar ekki inni í þessu frumvarpi en það liggur fyrir yfirlýsing um stefnu ríkisstjórnarinnar hvað það snertir þó útfærslan sé ekki komin fram.

En ég sé ekki að varpa þurfi nokkrum skugga á þá tillögu sem hér er verið að fjalla um varðandi virðisaukaskattinn og þá miklu breytingu sem í frumvarpinu felst. Hér er um að ræða tillögur sem sennilega fela í sér allt að 10 milljarða lækkun á tekjum ríkissjóðs. Það er gríðarlega mikilvægt að þær upphæðir skili sér í vasa landsmanna, (Forseti hringir.) skili sér til heimilanna þegar breytingarnar ná fram að ganga.