vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.
Frú forseti. Ég ætla fara nokkrum orðum um þetta frumvarp sem er til efnda á tillögum ríkisstjórnarinnar, sem kynntar voru 9. október síðastliðinn, um aðgerðir til að lækka matvælaverð.
Ég vil þó fyrst segja vegna orðaskipta sem orðið hafa milli ræðumanna ýmissa frá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki, þar sem menn hafa rætt mikið höfundarrétt á þeirri hugmynd að lækka matvælaverð og hver hafi lofað og hver ekki lofað lækkun á virðisaukaskatti á matvælum, að ég held að minni manna sé óþarflega stutt ef þeir vilja fara í sögulega upprifjun á þessum málum á annað borð.
Það er ekki svo, frú forseti, að þetta mál sé að koma til kasta Alþingis nú á allra síðustu missirum eða árum og aldrei hafi verið tekist á um skattlagningu matvæla á Íslandi fyrr en á þessu kjörtímabili í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Sá sem hér stendur skal þá rifja þessa hluti örlítið upp. Það var þannig að 2. desember 1988 urðu hljóðbærar, í tengslum við ákvörðun ríkisstjórnar sem þá sat að taka upp virðisaukaskatt í staðinn fyrir söluskatt, tillögur sem kallaðar voru almennt matarskattstillögurnar. Sem sagt, að taka ætti upp virðisaukaskatt í stað söluskatts í einu þrepi á allar vörur sem hefði þá, miðað við þær reglur sem áður höfðu gilt, þýtt umtalsverða hækkun á matvælum. Af þessu spunnust mjög hörð átök.
Hver var flutningsmaður þessa frumvarps? Það var þáverandi hæstv. fjármálaráðherra og formaður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson. Verkalýðshreyfingin og þáverandi stjórnarandstaða sem samanstóð af þingflokkum Alþýðubandalags, Borgaraflokks og Samtaka um kvennalista, veitti þessari ríkisstjórn harða viðspyrnu með stuðningi frá verkalýðshreyfingunni.
Einmitt þann dag sem ég nefndi, fyrir svo mörgum árum síðan, 2. desember, var haldinn í þinghúsinu merkur fundur þar sem ríkisstjórnin vildi kynna stjórnarandstöðunni þær hugmyndir sínar að milda örlítið áhrifin af upptöku matarskattsins með því að greiða niður fjóra vöruflokka matvæla, draga þannig úr áhrifunum. Þetta var kjöt, fiskur, mjólk og grænmeti.
Þá kom í ljós að ríkisstjórnin var þegar búin að selja þetta samkomulag verkalýðshreyfingunni og ætlaði, ef svo má segja, að selja sama hlutinn tvisvar og kaupa stjórnarandstöðuna góða út á þetta mál. Það tókst ekki. Upp úr sauð á fundi hér í suðvesturhorni hússins sem þá var kallað myndaherbergið. Mér er það í fersku minni að við vorum þá í forustu fyrir stjórnarandstöðunni, ég og Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, og það var fátt um kveðjur þegar þessum fundi lauk 2. desember 1988 og upp hófst einhver harðasta lota átaka milli stjórnar og stjórnarandstöðu sem ég hef gengið í gegnum á Alþingi á mínum tæpu 24 árum þar, þ.e. orrustan mikla um matarskattinn og fleiri tengdar breytingar.
Þá þegar voru hörð átök um nákvæmlega sama hlut og hér er enn til umfjöllunar, hvernig haga eigi skattlagningu á þessar brýnustu lífsnauðsynjar fjölskyldnanna. Er réttlætanlegt að hafa þar aðra og vægari skattlagningu en á aðrar almennar vörur? Svo vill til, frú forseti, að það var þá og er enn afstaða þess sem hér stendur. Hvað sem aðrir segja get ég a.m.k. státað af því, að ég tel.
Mér er bent á, sem rétt er, að ég hafi óvart farið rangt með ártal, þetta var að sjálfsögðu 2. desember 1987. Þetta var fyrir stjórnarskiptin. Þetta er þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks er enn við völd og áður en hún sprakk 1987, sem var reyndar mjög tengt þessu máli. Því að hin hörðu átök um upptöku matarskattsins og eindregin krafa formanns Alþýðuflokksins, Jóns Baldvins Hannibalssonar, og fylgismanna hans, um að virðisaukaskatturinn skyldi vera í einu þrepi og ganga yfir allar vörur jafnt, kom svo mjög til umræðu síðsumars 1988 þegar sú ríkisstjórn var komin í miklar ógöngur með stöðu efnahagsmála og leitaði leiða til að komast út úr því og þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, lagði til að horfið yrði frá skattlagningu á matvæli með þeim hætti sem ákveðið hafði verið skömmu áður. Það var kölluð rýtingsstunga í bak af samstarfsaðilum í ríkisstjórn.
Síðan, til að fara hratt yfir sögu, komu þeir tímar að menn tóku upp annað þrep í virðisaukaskattinum og það var haft 14%. Þá var ég sömuleiðis fylgjandi því og hef jafnan verið. Mín rök hafa verið tvenn, og bæði mjög einföld: Annars vegar að matarútgjöldin vega þeim mun þyngra sem tekjur fjölskyldnanna eru lægri og þær eru stærri. Þetta er staðreynd. Þess vegna hafa útreikningar jafnan sýnt að það sé tekjujafnandi og góð aðgerð að hlífa þessum brýnustu lífsnauðsynjum fjölskyldnanna við skattlagningu. Hins vegar að ég hef metið það svo, og ég held að það sé rétt mat, að þegar slík aðgerð er einu sinni komin inn í lög og orðin pólitísk staðreynd þá er mjög erfitt að hrófla við henni. Það má óska hverjum þeim til hamingju sem ætlar að reyna að hrófla við þeirri vægari skattlagningu á slíkum brýnum lífsnauðsynjum þegar hún er einu sinni komin á.
Ég hef þar af leiðandi alltaf metið það svo að þetta sé fastara í sessi og tryggari aðgerð til að bæta kjör þessara hópa en t.d. beinar niðurgreiðslur á fjárlögum. Menn hafa gjarnan sagt að það sé jafnvel betri kostur í þessum tilvikum t.d. að færa sömu fjármuni yfir í barnabætur. Reikningslega getur vel verið að færa megi rök fyrir slíku og þau rök notuðu framsóknarmenn gjarnan fyrir því að þeir vildu frekar fara slíkar leiðir heldur en að vera með lægri skatta á mat. Pólitískt eru slíkar ráðstafanir miklu valtari í sessi því að þeim er hægt, með einföldum breytingum við afgreiðslu fjárlaga eða skattalaga á hverju ári, að breyta, draga úr eða skerða. En það er erfiðara að fela það ef menn ætla að hrófla við grundvallaraðgerð af því tagi að hafa matvöruna eða t.d. barnaföt eða aðrar slíka nauðsynjavörur fjölskyldna öðruvísi skattlagðar.
Ég er enn þeirrar skoðunar að þetta sé skynsamleg aðgerð og get þá komið að frumvarpinu og sagt að ég sé almennt hlynntur því sem hér er á ferðinni í þessu frumvarpi og það erum við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði. Við teljum þetta í öllum aðalatriðum vera skynsamlegar aðgerðir eins og nú er málum háttað til þess að koma til móts við sterkar kröfur um lægra matvælaverð hér á landi. Hér eru einnig á ferðinni fleiri jákvæðir þættir. Ég nefni að þetta bætir stöðu veitingaþjónustunnar, þetta er jákvætt innlegg varðandi starfsskilyrði ferðaþjónustunnar í landinu en þar hafa menn lengi kvartað undan háu matvælaverði.
Það er sömuleiðis ánægjulegt að menningarstarfsemi, bækur, blöð, tímarit og einnig geisladiskar og hljómplötur fá þarna sterkari stöðu með lækkun almenna þrepsins úr 14% niður í 7, og það að geisladiskar, hljómplötur og segulbönd með tónlist og annað því um líkt kemur þarna inn einnig. Í öllum aðalatriðum má því kalla þessar ráðstafanir í frumvarpinu fagnaðarefni.
Varðandi hátt verð á matvælum þá hef gagnrýnt það, og geri enn, að viðleitni stjórnvalda og skoðun á þessum málum var að mínu mati í of þröngum farvegi. Mér fannst það undarleg ráðstöfun hjá þáverandi formanni Framsóknarflokksins, Halldóri Ásgrímssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, að setja nefnd á laggirnar sem eingöngu átti að skoða hátt matvælaverð á Íslandi. Því er það svo að það sé fyrst og fremst matvælaverðið sem er hátt, borið saman við önnur lönd? Nei, veruleikinn er sá að það gildir um verðlag almennt. Að mínu mati var ekkert síður ástæða til að skoða það hvernig á því stendur að innflutt vara, sem á ekkert skylt við matvöru, ekkert skylt við landbúnaðarstefnu á Íslandi eða tollvernd, er hlutfallslega síst ódýrari hér borið saman við önnur lönd? T.d. fatnaður, skór, ýmis merkjavara af því tagi. Þetta er veruleikinn og er þá ekki alveg eins ástæða til að kanna það?
Menn geta út af fyrir sig sagt að matvaran sé óumflýjanleg og brýn neysluvara í útgjöldum hverrar fjölskyldu. Það er rétt. En má ekki að verulegu leyti segja það sama um ýmislegt annað? Ekki ganga menn klæðlausir hér í landi eins og veðráttan er. Er ekki staðreyndin sú að nánast enginn fataiðnaður er eftir í landinu þannig að slíkur varningur er allur fluttur inn? Og hann reynist 40–60% dýrari en víða í samanburðarlöndunum og er síst ódýrari hlutfallslega en innflutta matvaran.
Hvernig stendur á því að matvara erlendis frá, svo sem nýlenduvörur, sem nýtur engrar tollverndar er síst ódýrari borið saman við aðra flokka hlutfallslega en sú vara sem framleidd er innan lands eða nýtur verndar?
Mér hefur alla tíð fundist ósanngjarnt og beinlínis efnislega rangt að einskorða þessa umræðu við matvælaþáttinn og alveg sérstaklega ómaklegt að beina eingöngu sjónum að þeim hluta matvörunnar sem framleiddur er á Íslandi eða nýtur tollverndar hér. Því það er ekki svo að vandamálið sé einskorðað við það, aldeilis ekki.
Þá erum við komin að því að líta þarf á fleira. Það þarf að líta á verslunina, á samkeppnisaðstæðurnar. Það þarf að greina þá staðreynd að verðlag almennt er mjög hátt á Íslandi, að innflutt vara er almennt dýr. Við vitum vel að upp að vissu marki eru á því náttúrulegar og beinar efnislegar skýringar. Markaðurinn er lítill, flutningaleiðir eru langar, við erum ekki nema 300 þúsund, vöruvelta víða í verslun er hæg, rýrnun allmikil o.s.frv. Þetta kann vel að skýra einhvern 10, 20 prósenta mun þannig að það sé fyllilega ásættanlegt, það er þá einfaldlega veruleikinn, það fylgir því að búa í þessu landi eins og aðstæðurnar eru. En þarna er ískyggilega og grunsamlega mikill munur sem ekki verður rakinn til landbúnaðarins, fyrirkomulagsins hvað varðar framleiðslu, verðlagningu eða tollvernd þeirrar vöru, heldur er hluti af stærra máli, verðmyndun almennt og verðlagi í landinu. Hvers vegna er þessi hluti málsins alltaf gerður að sökudólgi eða blóraböggli? Hvers vegna í ósköpunum skipaði fyrrverandi forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, nefnd sem átti bara að kanna hátt matvælaverð? Af hverju ekki vöruverð, af hverju ekki verðlag? Af hverju ekki verðmyndunina almennt og greina hana?
Kemur þá ekki í ljós, eins og Nóbelsskáldið sagði forðum, að það er almennt dýrt að vera Íslendingur. Við lifum við þann veruleika að verðlag er hátt hér á landi. Sem betur fer er kaupgjald líka hátt og kaupmáttur á Íslandi er gagnvart þessum vörum í raun alls ekkert lakari en gengur og gerist í nálægum löndum. Það sjáum við best á því að skoða að fjölskyldurnar hér eyða hlutfallslega ekki meira af launum sínum og ráðstöfunartekjum til matvælakaupa en þær gera í öðrum löndum, um 15–16% og þar af vegur innlenda matvaran orðið minna en 6–7%, eða ekki meira en það.
Að tala um að í verðlækkun þess þáttar útgjalda heimilanna felist möguleikar á einhverjum stórfelldum kjarabótum kemur manni spánskt fyrir sjónir. Hvernig er hægt að stórbæta kjör fjölskyldna í landinu með því að lækka eitthvert verð á 5–6% útgjalda fjölskyldunnar þegar aðrir þættir, eins og rekstur á bíl eða ferðalög eða aðkeypt þjónusta, vegur miklu þyngra? Að ég tali ekki um húsnæðisöflun eða annað því um líkt.
Það eru lágtekjufjölskyldurnar, það eru barnmargar lágtekjufjölskyldur sem finna tilfinnanlega fyrir þessu háa vöruverði og matvælaverði þar með og það gerir það að verkum að sá sem hér talar hefur verið og er, og hefur alltaf verið á sinni tíð á þingi, sammála því að grípa til aðgerða þarna og hafa skattlagninguna á þessum brýnu lífsnauðsynjum vægari.
Ég hef gjarnan lagt til að þar bættust við vörur eins og t.d. barnavörur, sérstaklega fyrir barnafjölskyldurnar, og þær gætu þá verið annaðhvort í þessu lægra skattþrepi eða hreinlega án virðisaukaskatts eins og er t.d. í Bretlandi og virðist ekki skapa nein stórkostleg vandamál í skattlagningunni þar. Veruleikinn er auðvitað sá að virðisaukaskatturinn er í þremur þrepum. Hann er 24,5, 14 eða 7% núna og svo núll. Þannig verður það væntanlega áfram og skapar ekki nein stórkostleg vandamál hjá öðrum þjóðum.
Ég er alveg sammála þeirri aðgerð að færa 14% þrepið niður í 7% yfir línuna. Ég held að ekki hefði verið skynsamlegt að fara út í þrjú þrep eða kannski fjögur, ef við tökum núllið með, og skilja eftir einhverja vöruflokka í 14%. Mér finnst útfærslan á þessu tæknilega vera skynsamleg.
Ég vil nefna hér til sögunnar, svo það gleymist ekki, þann hóp sem sannanlega býr við tilfinnanlega hátt matvælaverð eins og annað vöruverð og það eru íbúar landsbyggðarinnar. Það eru íbúar þeirra svæða á landsbyggðinni sem ekki hafa lágvöruverðsverslanir innan seilingar. Þar er matvælaverðið og vöruverðið í alvöru tilfinnanlega hátt. Hvað er ríkisstjórnin að gera til að takast á við það? Er hún með einhverjar aðgerðir til að bæta starfsskilyrði strjálbýlisverslunar? Nei. Hefur ríkisstjórnin mannað sig upp í að efna tillögur um að lækka flutningskostnað? Nei. Auðvitað stendur það algerlega upp á ríkisstjórnina að gera eitthvað í þeim efnum.
Við höfum á undanförnum mánuðum heyrt fréttir um mikla rekstrarerfiðleika lítilla verslana á landsbyggðinni sem eru algjörlega lífsnauðsynlegar fyrir viðkomandi byggðarlög. Það verður að vera matvælaverslun í Grímsey. Það verður að vera matvælaverslun á Breiðdalsvík og víða annars staðar. Annars getur fólk ekki búið á þessum stöðum nema hafa bíl og það hafa ekki allir og jafnvel þó svo væri er eiginlega ekki boðlegt að reka byggð nema þar séu a.m.k. daglegar nauðsynjar fáanlegar. Þarna hefðu menn mátt standa betur að vígi.
Afstaða flokks míns almennt er sú að við erum hlynnt aðalefni þessa frumvarps. Við höfum á hinn bóginn viljað fara varlega í sakirnar gagnvart aðgerðum sem geta kippt fótum undan íslenskum landbúnaði, íslenskum matvælaiðnaði og stofnað öllum þeim ríku hagsmunum sem þar eru á bak við í voða. Þar er á bak við byggð í strjálbýlinu í sveitum landsins. Þar eru á bak við miklir atvinnuhagsmunir þar sem 4.000–6.000 manns hafa beint og óbeint atvinnu af þjónustu við og úrvinnslu á framleiðslu landbúnaðarins. Þar er á bak við fæðuöryggi landsmanna, að við séum, a.m.k. hvað varðar fæðu, sjálfum okkur næg í einhverjum mæli. Það er þannig, veruleikinn er sá að við framleiðum sjálf um eða innan við helming fæðuþarfar þjóðarinnar. Það er lágt hlutfall miðað við flest lönd. Flestir mundu viðurkenna, held ég, að æskilegt er að þetta hlutfall sé hærra, ef eitthvað er. Ég nefni hollustu- og heilbrigðisþáttinn. Við vitum hvaða gæði við höfum í okkar innlendu framleiðslu og meðvitund manna um hið gagnstæða, þ.e. ónóga hollustu, mengun og skaðlegt efnainnihald varnings sem framleiddur er í verksmiðjubúskap með mikilli notkun eiturefna o.s.frv., fer nú mjög vaxandi. Menn leita víða aftur til upprunans í náttúrulegri framleiðsluaðferðir, lífrænar vörur o.s.frv. Þarna þurfum við Íslendingar að taka okkur á.
Sú grunnhyggna, frumstæða umræða að það eina sem skipti máli sé verðið, að til sé eitthvert sameiginlegt meðaltalsmatvælaverð í Evrópu og það sé hægt að ræða án tillits til aðstæðna og gæða, er ekki rishá. Það er heldur ekkert sérstaklega hátt á því risið að rífast hér um höfundarrétt á því að grípa til skynsamlegra aðgerða sem koma fjölskyldunum í landinu til góða.
Að síðustu er ekki hægt annað en nefna, frú forseti, tekjuáhrif frumvarpsins. Nú verður það sjálfsagt ekki vinsælt að einhver nefni það, en þá skal það gert til þess að einhver segi það, að hér er verið að afsala ríkissjóði umtalsverðum fjármunum, 8.700 millj. strax á næsta ári því að þetta á að ganga í gildi korteri fyrir kosningar eins og sagt er. Miskunn ríkisstjórnarinnar á að líta dagsins ljós 1. mars, er það ekki? Tveimur mánuðum fyrir þingkosningar, alveg í bláenda kjörtímabilsins. Það er nú með seinni skipunum, ekki satt, sem ríkisstjórnin efnir eitthvað af loforðum sínum eða var það Sjálfstæðisflokkurinn í þessum efnum?
Tekjutap ríkissjóðs er 10,5 milljarðar kr. á ársgrundvelli. Það eru umtalsverðir fjármunir, sett í samhengi t.d. við útgjöld til menntamála eða framkvæmdir í vegamálum eða hvað sem er. Þegar þetta bætist við verulegt tekjutap ríkissjóðs vegna skattalækkana á öðrum sviðum, þar á meðal ígildi 2% lækkunar tekjuskatts um komandi áramót og fleiri breytingar sem gerðar hafa verið, þá er alveg ljóst að hinn stöðugi tekjugrunnur ríkissjóðs lækkar umtalsvert með þessum ráðstöfunum í heild. Það er auðvelt að gera það núna vegna þess að það háttar svo til að ríkið hefur haft miklar tekjur af þenslunni, af viðskiptahallanum og í raun og veru af afbrigðilegu ástandi í hagkerfinu, ástandi sem ekki fær staðist til lengdar vegna þess að það er ekki hægt að reka ríkið með grenjandi halla í viðskiptum við útlönd endalaust. Þessum tíma mun ljúka því vonandi tekst að skipta um ríkisstjórn í landinu í vor, ríkisstjórn sem hefur hugsun á því að reyna að innleiða aftur stöðugleika og ástand í hagkerfinu sem fær staðist, þ.e. við náum endum saman og rekum þjóðarbúskapinn í jafnvægi. Þá mun það taka í að búið er að afsala ríkissjóði jafnumtalsverðum tekjum og þessi ríkisstjórn er nú að gera á lokaspretti kjörtímabils síns.
Þess vegna endurtek ég það, þó að ég hafi sagt það nokkrum sinnum áður, að ekki er víst að það verði eins auðvelt að vera fjármálaráðherra á næstu árum og koma saman hallalausum fjárlögum og verið hefur að (Forseti hringir.) undanförnu.