vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.
Herra forseti. Hér erum við að ræða frumvarp ríkisstjórnarinnar sem hefur það m.a. að markmiði að lækka matvælaverð. Að mati okkar í Samfylkingunni er það löngu tímabært skref sem hér er tekið og við fögnum því að sjálfsögðu þó að við hefðum viljað ganga lengra eins og hefur komið fram í máli þeirra þingmanna flokksins sem hafa talað hér í dag.
Það er rétt að rifja aðeins upp söguna hvað varðar þessi áherslumál á þessu kjörtímabili. Þingmenn Samfylkingarinnar hafa ítrekað lagt fram tillögur á þingi um að lækka virðisaukaskatt á matvælum um helming á þessu kjörtímabili, á hverju einasta ári ef út í það er farið. Í hvert einasta skipti hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ýtt á nei-hnappinn og fellt þær tillögur.
Loksins örfáum mánuðum fyrir kosningar vaknar Sjálfstæðisflokkurinn upp við þá stöðu að hann hefur ekki uppfyllt eitt af kosningaloforðum sínum sem var það nákvæmlega sama og okkar á sínum tíma sem laut að því að lækka matarskattinn um helming.
Samfylkingin hefur ítrekað tekið frumkvæði í þessu máli og ekki síst vegna baráttu hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur sem hefur ítrekað verið með fyrirspurnir og skýrslubeiðnir um þetta mál og hreyft þannig við því.
Þingflokkur Samfylkingarinnar fór sömuleiðis af stað aftur í haust með metnaðarfullar tillögur sem mundu lækka matvælakostnað landans um fjórðung sem er meiri háttar lækkun og mikil kjarabót fyrir allar íslenskar fjölskyldur. Örfáum dögum eftir að Samfylkingin lagði fram sínar hugmyndir fóru ríkisstjórnarflokkarnir af stað og kynntu sínar tillögur sem nú er komið á daginn að eru illa unnar að einhverju leyti því að við höfum tvö dæmi sem benda til þess að annaðhvort hafi útspil eða viðbrögð ríkisstjórnarflokkanna við frumkvæði Samfylkingarinnar verið illa undirbúið eða einhvers konar ósætti er á milli ríkisstjórnarflokkanna.
Hér hefur hæstv. fjármálaráðherra í andsvari fyrr í dag sjálfur beðið um frestun á ákveðnum hluta þessa frumvarps sem lýtur að lækkun virðisaukaskatts á áfengi og að sama skapi hækkun á áfengisgjaldi vegna þess að málið hafi einfaldlega verið vanreifað og nauðsynlegir útreikningar ekki kláraðir. Maður kann að minnsta kosti að meta þessa hreinskilni og virða hana við hann. Hins vegar hverfur sú virðing fljótt þegar á það er litið hversu illa var staðið að undirbúningi þessa máls.
Hin vísbendingin sem segir að þetta mál gæti verið betra, eða að það sé einhvers konar ósætti milli Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins, er að í þetta frumvarp vantar að öllu leyti áætlanir um boðaðar tillögur ríkisstjórnarflokkanna um tollalækkanir. Við tókum eftir því strax í fjárlagavinnunni og fjárlagaumræðunni hér á þingi að ekki er gert ráð fyrir þessum tollalækkunum sem ríkisstjórnin þó boðaði núna í haust að ættu að taka gildi 1. mars nk., sem sagt að þær tollalækkanir ættu að hafa áhrif á fjárlögin. Það er ekki gert ráð fyrir því í fjárlögunum og það er ekki gert ráð fyrir tollalækkunum í þessu frumvarpi.
Mig langar að skauta aðeins, herra forseti, yfir helstu álitamálin að mínu mati í frumvarpinu. Hið fyrsta sem er gagnrýnisvert er að þessar aðgerðir taka ekki gildi fyrr en 1. mars nk., tveimur mánuðum fyrir kosningar. Það er vert að rifja upp að þessi ríkisstjórn hefur haft 11 ár til að lækka matvælaverðið en ekki gert. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa meira að segja unnið gegn lækkuðu matvælaverði með því að greiða atkvæði gegn tillögum Samfylkingarinnar sem í sumum tilvikum eru nákvæmlega eins orðaðar og þær tillögur sem núna birtast rétt fyrir kosningarnar.
Það er einnig vert að vekja athygli á því að kjarabótin fyrir almenning sem ríkisstjórnarflokkarnir þó boða í þessu frumvarpi er einungis helmingurinn af því sem felst í tillögum Samfylkingarinnar, þ.e. að Samfylkingin var reiðubúin að lækka matvælaverðið helmingi meira en ríkisstjórnarflokkarnir vilja. Við ætluðum að lækka matvælaverðið um 200 þús. kr. á hverja fjölskyldu á ársgrundvelli og það er alveg augljóst að hvert einasta heimili munar um slíka upphæð. Við göngum talsvert lengra hvað þetta varðar en ríkisstjórnin gerir.
Víkjum fyrst að vörugjöldunum. Samfylkingin lagði fram afskaplega skýra stefnu í þeim í haust. Við viljum einfaldlega fella niður vörugjöld á matvælum og ganga alla leið en ríkisstjórnin ætlar hins vegar að fella minna en helming vörugjaldanna niður, ætlar að skilja meira en helming vörugjaldanna á matvælum eftir þar sem hún tekur út vissa flokka matvæla sem ríkisstjórnin telur vera óholla í einhverjum skilningi þess orðs. Hér eru ríkisstjórnarflokkarnir að praktísera talsverða neyslustýringu sem verður mjög fróðlegt að heyra ýmsa þingmenn Sjálfstæðisflokksins réttlæta, ef þeir leggja í þá umræðu, sem er þeirra að réttlæta. Með því að skilja eftir stóran hluta vörugjaldanna viðhöldum við sömuleiðis þeim flókna vörugjaldafrumskógi sem er til staðar. Vörugjöldin eru tímaskekkja að mínu mati. Þau hafa uppsöfnunaráhrif og þetta er flókið regluverk. Það er einfaldlega miklu hreinlegra að afnema vörugjöld með öllu en vera ekki með þetta hálfkák varðandi þau.
Ef við förum núna yfir í virðisaukaskattinn er það fagnaðarefni að þeir ætla að helminga virðisaukaskattinn á matvælum og það er bara orðrétt eins og fyrri tillögur Samfylkingarinnar. Ríkisstjórnin ætlar sömuleiðis að lækka skatta á bókum og tímaritum og fleiri hlutum sem er einnig í anda fyrri tillagna Samfylkingarinnar og fyrri kosningaloforða flokksins.
Það er sömuleiðis sérstaklega ánægjulegt að ríkisstjórnin hefur tekið undir orð þingmanna Samfylkingarinnar um að lækka virðisaukaskatt á tónlist sem oft situr eftir í þessari umræðu en má alls ekki gera því að við þurfum að hlúa betur að menningu okkar og gera það með víðtækum hætti. Við sjáum að menningin er vaxandi atvinnugrein í landinu og til að undirstrika mikilvægi hennar má benda á þá staðreynd að framlag menningar til landsframleiðslunnar er 4% en að sama skapi er framlag sjávarútvegsins 7–8%. Til samanburðar er menningin afskaplega stór hluti af hagkerfi okkar sem auðvitað ber að gefa gaum.
Tollarnir, eins og ég segi, eru stóra málið þegar kemur að því að lækka matvælaverð. Hér skila ríkisstjórnarflokkarnir algjörlega auðu. Það er ekki minnst á tollana í þessu máli ríkisstjórnarinnar sem er mjög bagalegt. Það er auðvitað vert að velta fyrir sér hvort hinn nýi ráðherra neytendamála þessarar ríkisstjórnar, Guðni Ágústsson, hafi einfaldlega stoppað málið eða hvort ríkisstjórnin bíði eftir einhvers konar línu frá Bændasamtökunum. Ég veit ekki hvernig það er en það er gagnrýnisvert að tollalækkunin skuli ekki skila sér í þetta frumvarp vegna þess að ríkisstjórnin boðaði að tollalækkanirnar ættu að taka gildi 1. mars nk.
Samfylkingin ætlaði að fella niður alla tolla í áföngum. Við tefldum fram þeirri hugmynd að fella niður helminginn 1. júlí og síðan mundum við fella niður afganginn í samráði við hagsmunasamtök bænda og neytenda. Að sama skapi töldum við rétt að gera sérstakan tímabundinn aðlögunarsamning við bændur fyrir 1. júlí sem tekur tillit til niðurfellingar helmings tollverndarinnar. Síðan mundum við að sjálfsögðu ræða við fulltrúa bænda um næstu skref í að fella niður tolla. Tollar eru líka tímaskekkja sem blasir alveg við.
Ríkisstjórnin sem skilar auðu í tollamálum í dag talaði í haust um að hún vildi lækka almenna tolla af innfluttum kjötvörum allt að 40%, þ.e. ríkisstjórnin ætlar ekki að fella alla tolla niður, ætlar bara að fella niður tolla af afmörkuðum vörum, og síðan allt upp að 40%. Sú tillaga virkar hálfmáttlaus en hún er þó skárri en það sem við stöndum frammi fyrir í dag, þ.e. engri tollalækkun.
En segjum að ríkisstjórnarflokkarnir vakni einhvern tímann til lífsins og lækki tollana í þeim anda sem þeir boðuðu núna í haust, þá er alveg ljóst að ríkisstjórnin skilur eftir tolla á mjög mikilvægum matvælum. Má þar nefna að áfram verða tollar á mjólkurafurðum og smjöri, pylsum, kaffi og kryddi, kæfum og drykkjarvörum, sósum, súpum, ís og sælgæti, túnfiski og sardínum, hrognum og feiti og olíu o.s.frv. Áfram eru mjög mikilvægir þættir í neyslu okkar skildir eftir og það ber sérstaklega að harma að mínu mati.
Það er fróðlegt að rifja upp að þegar ríkisstjórnin gerði eitt af sínum fáu jákvæðu verkum, það var á sínum tíma þegar ríkisstjórnin felldi niður tollavernd á gúrkum, tómötum og paprikum, gerðist í rauninni þrennt sem kannski kom sumum úrtölumönnum á óvart. Í fyrsta lagi lækkaði auðvitað verðið á viðkomandi vörum, á þessum grænmetistegundum. Númer tvö, verð lækkaði á öðrum grænmetistegundum sem ekki urðu fyrir sömu breytingu á tollunum. Og númer þrjú, meira seldist af viðkomandi grænmeti. Hagur bænda hefði átt að aukast, og jókst. Það er miklu skynsamlegri leið. Við höfum þessa jákvæðu reynslu af breytingu á tollakerfinu og síðan með því að mæta hagsmunum bænda á sama tíma með sérstökum samningi eins og var gert þegar tollaverndin var afnumin af gúrkum, tómötum og paprikum. Þá var gerður tímabundinn aðlögunarsamningur sem við í Samfylkingunni erum einmitt að tala um. Tollakerfið er ekki í hag neytenda og í þessu tilviki ekki heldur í hag bænda.
Í þessu sambandi er oft bent á að Íslendingar eru aðilar að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO og það er sagt: Við skulum bara bíða eftir niðurstöðum þeirra viðræðna. Það gleymist kannski að láta það fylgja að Ísland skipar sér með afturhaldssömustu þjóðum veraldar þegar kemur að þeim samningaviðræðum. Síðan má einnig benda á og rifja upp að þær viðræður virðast ekki ganga sérstaklega vel og alls óvíst er hvenær þeim lýkur. Það nær ekki nokkurri átt að fulltrúar ríkisstjórnarinnar vísi alltaf í einhverja óræða framtíð hvað það varðar. Við höfum val um að lækka matvælaverðið myndarlega án þess að það gerist á kostnað bænda og við eigum að gera það.
Samfylkingin fékk gagnrýni á sínum tíma fyrir að við ætluðum að koma aftan að bændum. Það er að sjálfsögðu ekki rétt. Í tillögum okkar er gert ráð fyrir samráði við bændur, sem er kannski umfram það sem kom fram í tilkynningu ríkisstjórnarinnar um leiðir hennar, og að sama skapi er gert ráð fyrir tímabundnum aðlögunarsamningi við bændur. Slíkt var hvorki í tillögum ríkisstjórnarinnar frá því í haust né í þessum tillögum.
Við teflum sömuleiðis fram hugmyndum um breytt fyrirkomulag stuðnings við landbúnað. Ég held að landbúnaðarkerfið okkar sé gallað. Þetta er eitt dýrasta kerfi í heimi fyrir skattgreiðendur. Neytendur greiða eitt hæsta matvælaverð í heimi og bændur uppskera ekki eins og þeir ættu að gera.
Stórvinir okkar í Bændasamtökunum komu á fund þingflokksins og ræddu þessi mál við þingflokk Samfylkingarinnar. Þar kom m.a. fram að bóndinn getur kannski átt von á því að fá u.þ.b. 40% af útsöluverði vöru sinnar í sinn hlut. Þetta finnst mér besti vitnisburðurinn um að kerfið er gallað. Við í Samfylkingunni viljum hækka hlutdeild bóndans í útsöluverði sinnar eigin vöru. Það er eitthvað að sjálfu kerfinu, það er dýrt, orsakar hátt matvælaverð og bændur hafa verri kjör en ella. Það verður bara að viðurkennast. Bændur gætu haft það betra ef þeir tækju undir tillögur Samfylkingarinnar um réttlátara kerfi, opnara kerfi, kerfi sem fær að starfa á eigin forsendum á hinum frjálsa markaði. Það hefur reynslan sýnt að virkar.
Það er ekkert að óttast fyrir bændur að mínu viti. Við þurfum að stíga þessi skref. Við munum gera það í samráði við bændurna en ég átta mig ekki alveg á því af hverju Bændasamtökin eru ekki viljugri til viðræðna um að breyta kerfinu í frjálsræðisátt á meðan þau sjálf benda á að bóndinn fær allt of lágan hluta af útsöluverðinu.
Ég ítreka að ég geri mér alveg fulla grein fyrir því að bændur eru ekki ofsælir af kjörum sínum þannig að það er enn einn vitnisburðurinn um að kerfið er að einhverju leyti gallað.
Samfylkingin lagði sömuleiðis í tillögum sínum áherslu á að auka samkeppnis- og verðlagseftirlit á matvælamarkaðnum. Það er algjört lykilatriði í okkar huga að við þurfum að tryggja að fyrirhugaðar lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum — og vonandi tollum einhvern tímann, þegar það kemur — skili sér til neytenda. En þá þurfum við að hafa öflug samkeppnisyfirvöld og öflugan talsmann neytenda. Það er líka kannski vert að rifja upp að ríkisstjórnin hefur ítrekað fellt tillögur stjórnarandstöðunnar um aukið fé til samkeppnisyfirvalda en að sama skapi hafa sumir þingmenn ríkisstjórnarinnar kallað eftir afskiptum samkeppnisyfirvalda á matvælamarkaðnum. En að sjálfsögðu þurfum við að færa samkeppnisyfirvöldum bæði fjárráð og möguleika til að sinna þessu mikilvæga verkefni.
Annað sem skilur að Samfylkinguna og ríkisstjórnarflokkana — og reyndar alla flokka þessa þings — er að Samfylkingin er eini flokkurinn sem vill að samkeppnislög gildi um landbúnaðinn. Samfylkingin var eini flokkurinn sem gerði athugasemd við það þegar samkeppnislögin voru undanþegin með sérstökum hætti þegar síðasti mjólkursamningur var gerður. Hér er enginn munur á afstöðu framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í þessari ríkisstjórn. Af einhverjum furðulegum ástæðum telja þeir að samkeppnin sé neytendum óhagstæð á þessum markaði, ólíkt öllum öðrum mörkuðum. Þetta er umræða sem við tókum fyrr í haust og auðvitað endurspeglast í henni grundvallarmunur á Samfylkingunni annars vegar og ríkisstjórnarflokkunum hins vegar.
Það er búið að ræða um áfengisgjaldið. Það er mjög skýr vitnisburður um að þetta mál hafi verið vanreifað og gert í miklum flýti. Ráðherra biður hv. efnahags- og viðskiptanefnd að skilja það sérstaklega eftir en tillögur í frumvarpinu lutu að því að hækka áfengisgjaldið um tæplega 60% og heildsalarnir töldu að það mundi hafa veruleg áhrif á smásöluverðið. Fyrir það ber auðvitað að þakka, að hæstv. ráðherrann viðurkenndi að hér hefði ekki verið sérstaklega vel að verki verið, og við munum skoða þetta í efnahags- og viðskiptanefnd.
Það er líka allt í lagi að halda því til haga að þegar ríkisstjórnin boðaði í óðagoti lækkun á virðisaukaskatti á matvælum minntist hún ekki einu orði á að það ætti að hækka áfengisgjald á sama tíma. Áfengisgjaldið gefur, að mig minnir, rúmlega 7 milljarða og hugmyndir með þessu frumvarpi lutu að því að hækka áfengisgjaldið um 4 milljarða þannig að við værum þá komin með áfengisgjald upp á 11 milljarða kr. sem er svipuð upphæð og allir framhaldsskólar landsins kosta. Við þurfum líka aðeins að velta fyrir okkur á hvaða verði við viljum sjá áfengi í landinu. Þar spilar auðvitað margt inn í, bæði meðferð landans á áfenginu, forvarnir o.s.frv. Eins og allir vita er áfengi á Íslandi með því dýrasta í heiminum en þrátt fyrir það er vínmenning okkar kannski ekkert sérstaklega til fyrirmyndar.
Að lokum, herra forseti, mikið hefur verið rætt hérna í dag um hver hafi átt hugmyndina að lækkun virðisaukaskattsins og hver ekki. Það er fagnaðarefni að margir fylki sér á bak við tillögu um að lækka matvælaverðið. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon gekk enn lengra en aðrir í þessari umræðu og fór til ársins 1987 til að skýra sína afstöðu. Það er aðeins fyrir mína tíð og það er kannski vert að koma þeim skilaboðum til hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar að 1987 var sá sem hér stendur einungis 10 ára gamall þannig að það er svolítið langt seilst að fara þangað til að rökstyðja mál sitt um það hver hafi verið fyrstur til að tala fyrir lækkuðu matvælaverði og hver ekki. Þetta er samt skemmtileg umræða.
Samfylkingin hefur sýnt hug sinn í verki. Á hverju einasta ári frá kosningunum vorið 2003 höfum við lagt fram þingmál um að lækka matvælaverðið. Við höfum verið með fjölmargar fyrirspurnir og skýrslubeiðnir um einmitt þetta mál þannig að þetta snertir kjarna hugmyndafræði okkar og áherslna. Í hvert einasta skipti sem tillögur okkar hafa komið til atkvæðagreiðslu hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem þó höfðu nákvæmlega sama kosningaloforð á stefnuskrá sinni, kosið gegn tillögum okkar. Núna loksins er hún að hreyfa sig, þessi blessaða ríkisstjórn, enda að koma kosningar. Við sjáum þetta í öðrum málaflokkum eins og í samgöngumálunum. Þetta er vonandi söngur sem almenningur þekkir og sér í gegnum því að það er alveg ljóst að þegar Samfylkingin kemst til áhrifa og valda munum við ekki starfa með þessum hætti.
Eins og ég segi, við fögnum því skrefi sem hér er tekið. Við bendum á galla í þessu máli, verulega galla, og sýnum hvað það er vanreifað og illa undirbúið. Við hefðum viljað ganga lengra að sjálfsögðu. Stærsti þátturinn til að lækka matvælaverð, eins og margoft hefur komið fram og m.a. í matvælaskýrslunni, er tollalækkanirnar.
Það er einn þáttur sem er afskaplega jákvæður við tollalækkanir, þær borga sig fyrir ríkissjóð í ljósi þess að tollarnir sem slíkir færa ríkissjóði ekki sérstaklega háar fjárhæðir en með lækkuðu matvælaverði skila þær krónur sér margfalt til baka. Kjör ríkissjóðs og almennings mundu batna við afnám tollanna og við mundum mæta þeim breytingum með góðum og sanngjörnum samningi við bændur. Í því sambandi þarf ekkert að óttast.
Það er fagnaðarefni að við tökum þetta skref en við þurfum að ganga miklu lengra. Stefna ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki er fyrir vikið bragðdaufari en hún þyrfti að vera því að tollana vantar. Matvælastefna Samfylkingarinnar er stefna sem verulegt bragð er að. Við munum tefla henni fram í komandi kosningum.