ummæli formanns Samfylkingarinnar á fundi í Keflavík – förgun fugla í Húsdýragarðinum.
Forseti. Ég þakka hlý orð [Hlátrasköll í þingsal.] og samúðarkveðjur í okkar garð en verð að hryggja menn með því að yfirlýsingar og fréttir um meinta förgun okkar í þingflokki Samfylkingarinnar eru ýktar. [Hlátrasköll í þingsal.] Það er auðvitað ekki (Gripið fram í: Ekki stórlega ýktar.) furðulegt að menn úr þingflokki eins og þingflokki Sjálfstæðisflokksins sem ekki eru vanir hreinskiptnum umræðum og hafa nú í áratugi mátt una við einvalda formenn sem ekki nota ræður á fundum til að aga sitt lið heldur gera það með öðrum hætti, skuli ekki skilja hvernig við förum að því að styrkja okkur í Samfylkingunni, nefnilega með sjálfsgagnrýni [Hlátrasköll í þingsal.] og einlægum skömmum og svívirðingum sem við hreinsum okkur með og stígum fram eins og goðin eftir ragnarök að lokum. Svona gera almennilegir flokkar.
Hitt er kannski sérkennilegra þegar 2. varaþingmaður Framsóknarflokksins í tilteknu kjördæmi í Reykjavík, þar sem er búið að hrekja burt tvo fyrrverandi forustumenn, kemur (Gripið fram í.) að ræða þann vanda Samfylkingarinnar að sá flokkur sé ekki nema með 25% fylgi í staðinn fyrir 30% fylgi eða 35% fylgi, þ.e. fyrrverandi 2. varamaður úr þingflokki sem býr við það traust kjósenda að vera með (Gripið fram í.) 5% fylgi og 6% fylgi. Ég verð að segja það, forseti, að ég tel að tíma þingsins sé betur varið í að yfirheyra (Forseti hringir.) meintan morðingja 56 landnámshænsna í [Hlátrasköll í þingsal.] Húsdýragarðinum.