fjárlög 2007.
Hæstv. forseti. Þær breytingar sem við erum að gera hér gagnvart lækkun á fjárveitingum til Lánasjóðs íslenskra námsmanna munu ekki hafa nein áhrif á kjör námsmanna. Hér er einfaldlega um það að ræða að umsóknum um námslán hefur ekki fjölgað eins mikið og gert var ráð fyrir í forsendum fjárlagafrumvarpsins. Hér er því um leiðréttingu að ræða en ekki stefnubreytingu hvað það varðar.
Hins vegar benti hv. þingmaður á að núverandi ríkisstjórn hefði engin tök á stöðugleikanum og að það væri mikill óstöðugleiki. Það var gert samkomulag við aðila vinnumarkaðarins á sumarmánuðum og ríkisstjórnin tók þátt í því. Stjórnarandstaðan andmælti mörgum þeirra óvinsælu aðgerða sem ríkisstjórnin fór í á þeim tíma. Nú eru þær aðgerðir að skila árangri. Öll merki eru um að verðbólga sé á niðurleið og það er ekki spáð hárri verðbólgu á næsta ári eins og hv. þingmanni er fullkunnugt um. Við erum að ná tökum á stöðugleikanum en við höfum þurft að taka ýmsar erfiðar ákvarðanir hvað það varðar. Eins og ég benti hv. þingmanni á skiptir það miklu máli fyrir heimilin í landinu að verðbólga sé ekki há. Og eins og ég sagði áðan er því spáð að kaupmáttur heimilanna í landinu muni aukast um rúm 5% á næsta ári, en að því gefnu að við stöndum vörð um stöðugleikann og missum ekki tök á verðbólgunni. Allar spár gera ráð fyrir að verðbólgan fari lækkandi og hún verði mun lægri á næsta ári en hún hefur verið á þessu ári og það skiptir máli fyrir íslenskan almenning.