133. löggjafarþing — 40. fundur,  5. des. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[11:31]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Birkir Jón Jónsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það eru ákveðnar viðræður í gangi milli aðila eftir því sem við komumst næst í starfi okkar í hv. fjárlaganefnd, meðal annars um þessi tollamál. Þau mál eru í eðlilegum farvegi. Ég tel ekki ástæðu til þess að taka málið aftur inn í nefndina.

Við höfum mörg önnur dæmi, meðal annars mörg frumvörp til dæmis um skattamál sem hér eru til meðferðar í þinginu og er ekki búið að afgreiða. Þetta er eins og mörg önnur frumvörp sem eru afgreidd á eftir fjárlagafrumvarpinu. Hins vegar er það alveg rétt að ákveðnar forsendur liggja á bak við viðkomandi frumvörp. En eins og ég segi þá hafa slík frumvörp oft verið afgreidd eftir að fjárlagafrumvarpið hefur verið samþykkt og það verður ekkert öðruvísi með þetta mál en önnur.

Það er rétt sem hv. þingmaður benti á að gert var ráð fyrir breytingum í tollamálum og ég vænti þess að við fáum niðurstöðu í þau mál fljótlega. Það er búið að kostnaðarmeta og leggja heildarlínurnar gagnvart þessum pakka og ég efast ekkert um að það muni standast allt í þeirri meðferð sem fram undan er hvað það frumvarp varðar.