fjárlög 2007.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar svarið. Mér þykir ekki nóg að svarað sé að það hafi gerst áður að samþykkt hafi verið frumvörp sem breyttu forsendum fjárlaga eftir að fjárlögin höfðu verið afgreidd. Ef það liggur fyrir kostnaðarmat á þessum aðgerðum þá finnst mér illt að skilja hvers vegna ekki sé rétt að gera ráð fyrir þeim í fjárlögum.
Ég hlýt að spyrja hv. formann fjárlaganefndar hvort hann telji það vera vinnubrögð eins og þau eigi að vera í ríkisfjármálum og meðferð þeirra að fá inn með afbrigðum á síðustu dögum þingsins stór mál um tekjur sem ekki tekst að gera ráð fyrir í fjárlögum fyrir næsta ár og hvort hann sem formaður fjárlaganefndar þingsins verði ekki að gera meiri kröfur um verkhætti og það að vandað sé til í þeim málatilbúnaði sem við fáum hingað í þingið frá framkvæmdarvaldinu.