133. löggjafarþing — 40. fundur,  5. des. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[11:33]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Birkir Jón Jónsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hér erum við að ræða frumvarp sem gerir það að verkum að virðisaukaskattur af matvælum verði lækkaður. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða, þjóðþrifamál. Auðvitað getum við verið sammála um að mál sem slík megi koma fyrr inn í þingið. En í ljósi þess að hér er um mikilvægt mál að ræða þá samþykktum við afbrigði og þess má geta að Samfylkingin stóð með stjórnarflokkunum í því máli enda teljum við að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða þó aðrir stjórnarandstöðuflokkar hafi setið hjá í þeirri afgreiðslu.

En auðvitað er það alltaf baráttumál okkar þingmanna að við fáum frumvörp fyrr inn. Ég held að okkur fari nú fram í þeim efnum. Okkur hefur farið fram í fjárlagagerðinni. Ég tel því að við séum á réttri leið þó sumum þyki að nokkuð gangi hægt í þeim efnum. En hver og einn metur það fyrir sig.