133. löggjafarþing — 40. fundur,  5. des. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[15:34]
Hlusta

Guðjón Ólafur Jónsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að árangurinn af ræðu minni við 2. umr. um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2007 sé að koma fram. Hann er sá að einn stjórnarandstöðuþingmaður hefur ákveðið að flytja eina tillögu til viðbótar frá því sem áður var. Ég rakti ítarlega í ræðu minni að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar hefðu ekki flutt eina einustu tillögu í félagsmálum, ekki eina einustu tillögu í heilbrigðismálum og ekki eina einustu tillögu í menntamálum við 2. umr. fjárlaga.

Nú liggur hins vegar fyrir að hv. þm. Valdimar Leó Friðriksson hefur treyst sér, eftir að hafa gengið úr Samfylkingunni, til að leggja fram eina tillögu við 3. umr. fjárlaga. Það er auðvitað sérstök ástæða til að fagna því og óska hv. þingmanni til hamingju með að hann hafi náð því, genginn úr Samfylkingunni, að leggja fram eina tillögu við 3. umr. um fjárlögin. Það verður að koma í ljós við atkvæðagreiðslu að lokinni 3. umr. hvernig ég greiði atkvæði. Það mun koma skýrt fram.

En ég skal lofa hv. þingmanni því að ég mun taka afstöðu. Það er það sem hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ekki þorað að gera við atkvæðagreiðslur um fjárlögin í haust.