fjárlög 2007.
Frú forseti. Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2007 er að koma til lokaafgreiðslu. Ég hef í umfjöllun um fjárlagafrumvarpið á þingi lagt áherslu á að breyta þurfi vinnubrögðum við fjárlagagerðina þannig að Alþingi komi meir að fjárlagagerðinni sjálfri og beri þar af leiðandi meiri og formlegri ábyrgð á fjárlögunum og gerð þeirra en nú er. Þetta eru allt of mikið ríkisstjórnarfjárlög, ráðherrafjárlög sem Alþingi síðan fær til meðhöndlunar á skömmum tíma og afgreiðir.
Varðandi þetta frumvarp hér skal það segjast að í því eru margir góðir þættir. Það hefur verið komið til móts við mörg verkefni sem mikilvægt var að koma til móts við. Það höfum við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs stutt og tekið þátt í vinnu í nefndum þingsins. Engu að síður eru ákveðnir málaflokkar sem standa alvarlega út af sem við höfum gert athugasemdir við. Ég nefni sérstaklega sjúkrahúsin á landsbyggðinni sem ekki fá það fjármagn sem nauðsynlegt er til að halda óbreyttum rekstri. Fleiri atriði mætti nefna sem standa þarna alvarlega út af.
Þær tillögur sem koma nú inn við 3. umr. eru sumar þess eðlis að þær eru samkomulagsmál og flokkarnir standa að þeim og við greiðum atkvæði með þeim. Aðrar tillögur eru eingöngu á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna og við munum sitja hjá við þær tillögur. Við frumvarpið í heild, eins og ég sagði áðan, þá er frumvarpið og öll vinna við það á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og meirihlutaflokkanna á Alþingi og þeir bera ábyrgð á forsendum frumvarpsins og afgreiðslu þess og hvernig úr því verður unnið. Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs mun því sitja hjá við endanlega afgreiðslu frumvarpsins.
Hitt held ég að standi upp úr, hin mikla óvissa og óöryggi í efnahagsmálum fyrir næsta ár. Skuldir þjóðarbúsins, viðskiptahallinn hefur vaxið gríðarlega á þessu ári, tvöfalt meiri viðskiptahalli en ráð var fyrir gert. Hann er á þriðja hundrað milljarð kr. á þessu ári. Óvissan næsta ár veltur ekki hvað síst á því hvort áframhald verður á væntingum um stóriðjuframkvæmdir. Frú forseti. Þetta eru hin stóru mál fyrir næsta ár.