133. löggjafarþing — 41. fundur,  6. des. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[11:05]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Ég segi já vegna þess að ég held að það sé réttlætis- og sanngirnismál að aldraðir og öryrkjar geti bætt eitthvað stöðu sína með tekjuöflun án þess að til skerðingar komi á bótagreiðslum. Ég held að það sé líka gott fyrir samfélagið að við bjóðum þessu fólki að nýta starfskrafta þess og að það geti lagt sitt af mörkum eftir því sem það hefur aðstæður og heilsu og starfsorku til.

Það er heldur dapurlegt að heyra talsmenn ríkisstjórnarinnar guma af þeim miklu fjármunum sem þeir ætla að verja til að bæta kjör þessara hópa á næstu fjórum árum. Hvar eru tugir milljarðanna sem ríkisstjórnin hefur sett í þetta verkefni á þessu kjörtímabili? Það er auðvelt að vera miklir karlar og monta sig af milljörðum sem eiga að renna til þessa á næsta kjörtímabili, en er það ekki til skammar og einmitt lýsandi fyrir það sem ekki hefur verið gert? (Gripið fram í: Samkomulag …) Snautlegt var að heyra hv. þm. Guðjón Ólaf Jónsson koma hér og rembast við að útskýra af hverju hann greiðir atkvæði gegn (Forseti hringir.) þessu þarfa umbótamáli, manninn sem þandi sig hér í allan gærdag (Forseti hringir.) af hneykslun yfir hjásetu stjórnarandstöðunnar.