133. löggjafarþing — 41. fundur,  6. des. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[11:16]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég segi já við þessari tillögu. Hér er lagt til að færa þá fjármuni yfir í Framkvæmdasjóð aldraðra sem þaðan hafa verið teknir til annarra verkefna en lög gerðu ráð fyrir á undanförnum árum, samanlagt um 5 milljarða kr. sem hafa verið færðir til annarra verkefna á árunum 1992–2007. Með því að færa þetta fé yfir í Framkvæmdasjóð aldraðra er hægt að gera skynsamlega áætlun um það hvernig eigi að taka á því vandamáli sem tengist búsetu- og umönnunarmálum aldraðra. Ég segi já, hæstv. forseti.