fjárlög 2007.
Virðulegur forseti. Á næstu fjórum árum verða byggð 374 ný hjúkrunarrými á Íslandi. Samkvæmt áætlunum okkar er mjög líklegt að þá þurfi ekki að byggja fleiri rými. Í dag erum við með hærra hlutfall aldraðra á stofnunum en er í nágrannaríkjum okkar þannig að við þurfum að herða okkur vel í heimahjúkrun. Nú þegar fara 700 millj. í heimahjúkrun á ári og við erum að bæta við 200 millj. á næsta ári þannig að það er verið að gera stórkostlega hluti í þessu.
Samkvæmt samkomulaginu við Landssamband eldri borgara á í tveimur þrepum að tryggja að féð sem fer í Framkvæmdasjóð aldraðra fari í ný hjúkrunarrými. Við það samkomulag ætlum við að sjálfsögðu að standa. Þessi tillaga gengur út á yfirboð (Gripið fram í.) eins og svo margar aðrar tillögur frá stjórnarandstöðunni og þess vegna segi ég að sjálfsögðu nei við henni.