133. löggjafarþing — 43. fundur,  6. des. 2006.

fæðingar- og foreldraorlof.

428. mál
[20:45]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Pétur Blöndal spyr mig um tölur sem ég verð því miður að viðurkenna að ég er ekki með við höndina. En ég skal sjá til þess að þær upplýsingar berist til félagsmálanefndar þar sem hv. þingmaður á sæti og mun væntanlega fjalla um málið.