133. löggjafarþing — 43. fundur,  6. des. 2006.

fæðingar- og foreldraorlof.

428. mál
[21:07]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Ég ætla ekki að flytja langa ræðu um þetta mál eða lengja umræðuna, enda ekki efni til þess í sjálfu sér. Ég vil fyrst og fremst taka undir það með síðasta ræðumanni að það er fagnaðarefni að þetta frumvarp skuli loksins komið fram til að kippa þessu tiltölulega einfalda og sjálfsagða máli í liðinn.

Þessi ágalli á framkvæmd þessara mála hefur stungið í augu. Hann er að sjálfsögðu ekki sá eini sem benda má á, eins og hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir hefur farið yfir. Það mætti taka upp margt úr framkvæmd og lögunum um fæðingarorlof og fleiri tengd atriði ef út í það væri farið. En ég hygg þó að flestum hafi fundist þetta einna ámátlegast og ankannalegast, að þessar greiðslur, sprottnar af tvennum ólíkum ástæðum, skyldu ekki passa saman í framkvæmd laganna þannig að menn misstu annað ef hitt kæmi til.

Enn merkilegra er þetta þegar maður horfir á hvað liggur á bak við í útgjöldum. Það er ekki eins og það hafi verið ástæða til að þvælast mikið fyrir í þessu máli af hálfu framkvæmdarvaldsins eða ríkisstjórnarinnar, eða hverjum við eigum að kenna um þetta. Þegar það er skoðað sést að málið snýst um tiltölulega litla fjármuni, þ.e. í útgjöldum talið fyrir ríkið, nokkra tugi milljóna kr. sem það getur komið til með að kosta að þessar greiðslur geti fallið til samtímis hjá þeim sem þannig háttar til um.

Hitt er alveg ljóst, að það getur munað verulega um þetta fyrir viðkomandi einstaklinga. En þó er það ekki síður einfaldlega grundvallaratriði málsins að þessir hlutir séu í lagi, að menn séu ekki með tengingar eða krossa af þessu tagi í löggjöfinni. Nóg er samt af tekjutengingum og öðrum slíkum hlutum sem skerða oft og tíðum með ósanngjörnum hætti eina greiðslu ef aðrar koma til, eða við tekjuöflun eða annað í þeim dúr.

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að fagna þessu frumvarpi þótt seint sé fram komið og það vefst vonandi ekki fyrir mönnum að afgreiða það.

Af því að hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir lagði spurningar fyrir hæstv. félagsmálaráðherra þá leyfi ég mér að bæta einni við. Hún er ósköp einfaldlega um flutning á vistun Fæðingarorlofssjóðs. Mér leikur hugur á að vita hver eru meginrökin fyrir þeirri tilfærslu. Ég hef að sjálfsögðu ekki neitt á móti því og svo sem getur margt mælt með því að Vinnumálastofnun annist frekar vörsluna en Tryggingastofnun ríkisins, enda fæðingarorlofslöggjöfin og varsla sjóðsins nátengd vinnumarkaðsmálum og aðilum vinnumarkaðarins eins og kunnugt er. Þó væri ástæða til að heyra hvers vegna farið er í þessa breytingu sem óumdeilanlega fylgir nokkur kostnaður á meðan tilfærslan á sér stað, tímabundinn kostnaður sem væntanlega skilar sér þá í betri og skilvirkari framkvæmd sem hlýtur að vera ein helsta röksemdin fyrir því að fara út í þessa kerfisbreytingu.

Það kann að vera að ráðherra hafi eitthvað komið inn á þetta í framsöguræðu sinni, sem ég náði því miður vegna truflunar í hliðarsal ekki að fylgjast alveg með. En gott væri ef hæstv. ráðherra vildi vera svo vænn að fara yfir helstu röksemdirnar fyrir mig í þessu sambandi.