fæðingar- og foreldraorlof.
Hæstv. forseti. Mér þykir leitt ef síðasti háttvirti ræðumaður missti af framsöguræðu minni. (SJS: Ekki allri.) Nei, ekki allri. En við getum farið yfir það síðar ef hann hefur misst af einhverju bitastæðu. Ég vil þakka þessa umræðu og þann jákvæða hug sem birtist í ræðum hv. þingmanna gagnvart þessu máli, sem reyndar kemur ekki á óvart.
Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir vék nokkrum atriðum til mín í ræðu sinni. Eitt af því sem hún nefndi þar var að fæðingarorlofslögin væru ein af fáum rósum í hnappagat ríkisstjórnarinnar frá 1995. Ég er sammála henni um það að þetta mál er rós í hnappagat ríkisstjórnarinnar en það er svo fjarri því að hún sé ein af fáum. Á þessum tíma hefur margt gerst og eru margar rósir í barmi ríkisstjórnarinnar. (Gripið fram í: Heill blómvöndur.) Heill blómvöndur, og sennilega meira til.
En það er hins vegar rétt að þetta mál er jákvætt. Víða erlendis vekja lög um fæðingar- og feðraorlof mikla athygli. Fyrir nokkru var ég á ferð í Brussel þar sem ég hitti m.a. fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB. Á þeim bæ er mjög horft til þessara mála. Ég geri ráð fyrir að við munum líklega kenna Evrópusambandinu sitthvað í þessum málum. Þar er mikill áhugi á því að taka upp svipað fyrirkomulag.
Hv. þingmaður nefndi líka að þetta mál væri, ásamt fleiri málum, seint komið fram. Ég er sammála því og hefði gjarnan viljað að það kæmi fram mikið fyrr. En svona æxlast þetta og það dróst nokkuð að ganga frá í frumvarpsform. En ég ákvað að leggja málið fram og freista þess að fá það afgreitt. Ég veit að það er mikill samhugur meðal háttvirtra þingmanna um að gera það og tel það mjög gott því að málið er þess eðlis.
Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir beindi til mín nokkrum spurningum varðandi framkvæmd fæðingarorlofslaganna. Ég ætla ekki að fara í það allt í smáatriðum. En hún spurði hvort ég væri tilbúinn að fara yfir þessi mál og skoða með henni. Það er ég að sjálfsögðu tilbúinn að gera hvenær sem er og við finnum út úr því.
Hins vegar vil ég taka fram að ég hef sett af stað vinnu í félagsmálaráðuneytinu, nokkurra sérfræðinga um þessi mál, til að fara yfir ýmsar ábendingar og athugasemdir sem hafa komið fram um framkvæmd laganna. Sú vinna er farin af stað og við munum síðar sjá hvað kemur út úr því. En ég er tilbúinn að ræða þetta mál eins og öll önnur hvenær sem er við hv. þingmann. Ég veit að hún getur lagt gott til mála, oft á tíðum.
Síðan var spurt um það hver yrði framþróun þessara mála og hugsanlega lengingu fæðingarorlofs. Ég svaraði því fyrir stuttu síðan, m.a. í svari við fyrirspurn frá hv. varaþingmanni Birni Inga Hrafnssyni. Að sjálfsögðu tel ég koma til greina að lengja fæðingarorlofið út af fyrir sig. En ég ætla ekki að gefa fyrirheit um það hér og nú. Við vitum að töluverður kostnaður fylgir því og við þurfum að meta það hvernig við viljum forgangsraða útgjöldum o.s.frv. Við þurfum að horfa til ýmissa mála í velferðarkerfinu. Við þurfum að meta þetta í því samhengi. Ég held ég svari því þannig og nokkuð loðið kannski.
Síðan hafa komið hér fram vangaveltur um af hverju sé verið að færa vörslu Fæðingarorlofssjóðs frá Tryggingastofnun til Vinnumálastofnunar. Fyrir ári var tekin um það ákvörðun að segja upp samningi við Tryggingastofnun um þessi mál og færa til Vinnumálastofnunar. Ég held út af fyrir sig að það sé rökrétt eins og m.a. kom fram í máli hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar. Hér eru á ferðinni vinnumarkaðstengd mál og ég tel fara vel á Vinnumálastofnun haldi utan um þau.
Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi þessa umræðu ekki lengri. En félagsmálanefnd mun fjalla um málið og að sjálfsögðu fær hún allar þær upplýsingar sem óskað verður eftir. Ég vona síðan að það gangi hratt og vel að vinna frumvarpið.