ættleiðingarstyrkir.
Frú forseti. Ég er ekki vanur að gefa ræðum hv. þingmanna einkunnir en þetta var einhver aumasta ræða sem ég hef heyrt af vörum nokkurs þingmanns. Hún kemur því miður ekkert á óvart því að hv. þingmaður leggst gjarnan gegn ýmsum sanngirnismálum. Ég rifja t.d. upp þegar hv. þingmaður ónýtti samstöðu í efnahags- og viðskiptanefnd um árið þegar nefndin að öðru leyti var sammála um að undanþiggja gjafir til líknarfélaga erfðaskatti. En látum það vera.
Allra vitlausasta í þessari ræðu var þegar hann fór að fjasa um, eða ýja að því a.m.k., að stjórnarandstaðan væri með einhverjum hætti að reyna að eyðileggja þetta mál með málþófi um Ríkisútvarpið. Herra trúr, þetta mál væri ekki á dagskrá nema vegna þess að stjórnarandstaðan ýtti því á dagskrá. Hún hefur gert allt sem í hennar valdi stendur til að greiða för málsins með góðu samstarfi við hæstv. ráðherra um málið. Þau rök sem hv. þingmaður tíndi til áðan gegn styrkjum af þessu tagi eru svo gjörsamlega út í hött að það tekur því varla að ræða þau.
Sem betur fer er hjartalagið í Sjálfstæðisflokknum almennt töluvert öðruvísi en það sem birtist í ræðunni hér áðan. Þar er fullt af fólki sem vill horfa af sanngirni á mál. Það getur vel verið að hv. þingmanni finnist ekki merkilegt að ríkið styrki með þessum hætti fólk sem þarf að sækja til erlendra ríkja til þess að verða sér úti um það sem hv. þingmaður sagði þó réttilega að skipti mjög miklu máli varðandi hamingju og heill. Fólk sem hefur beðið árum saman eftir því að geta eignast börn, í sumum tilvikum allt að tíu ár sagði hv. þingmaður að hefði safnað miklum auði á meðan. Þetta fólk hefur borgað mikla skatta. Þeir skattar hafa m.a. farið í að rækta önnur börn í íslensku samfélagi. Það er hægt að finna fullt af rökum til að skjóta stoðum undir þetta þjóðþrifamál sem allir styðja nema hv. þingmaður.