133. löggjafarþing — 43. fundur,  6. des. 2006.

ættleiðingarstyrkir.

429. mál
[21:42]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Hið sama gildir um þetta frumvarp og málið sem var á dagskrá næst á undan þessu að ég kem fyrst og fremst í ræðustól til að fagna því og þakka fyrir að það skuli loksins lagt fyrir þingið. Hér er ekki svo stórt mál á ferð sé það mælt í fjármunum né heldur hvað varðar form og gerð og því hefði ekki átt að þurfa að vefjast svo lengi fyrir mönnum að taka upp þetta fyrirkomulag. Það er svolítið snautlegt að við Íslendingar skulum verða síðastir allra Norðurlanda til að innleiða slíka réttarbót og mátti ekki seinna vera. En betra er seint en aldrei og við fögnum því að málið skuli loksins komið í þennan farveg.

Ég tek það fram að ég er enginn sérstakur sérfræðingur á þessu sviði þótt að ég hafi haft afskipti af þessu máli nokkrum sinnum á undanförnum árum, fyrst vegna setu minnar í efnahags- og viðskiptanefnd á sinni tíð þar sem þetta efni bar á góma, eins vegna setu í félagsmálanefnd og sökum þess að af og til hefur fólk leitað til mín á umliðnum árum sem svona háttar til um. Það hefur sem sagt ráðast í þetta eða beðið eftir því að hlotnast sú gæfa að fá að ættleiða barn. Ég þekki þetta ekki af persónulegri reynslu því að lífslán mitt hefur blessað mig og mína fjölskyldu ríkulega af börnum. En við vitum að svo er ekki um alla. Ég er þeirrar skoðunar að þegar vel tekst til, sem yfirleitt er ef vandað er til verka, þá geti þetta orðið til mikillar gæfu fyrir báða aðila, foreldrana sem í hlut eiga og börnin sem þau ættleiða.

Að sjálfsögðu er það réttlætis- og sanngirnismál sem varðar það að jafna aðstöðu fólks að menn fái með sambærilegum hætti stuðning gagnvart þeim kostnaði sem þessu fylgir eins og samfélagið styður með margvíslegum hætti við þann stóra hóp sem einfaldlega eignast börn og að kostnaðinum, sem þarna er óumflýjanlegur m.a. vegna þess að menn vilja vanda til verka, sé að einhverju leyti mætt.

Ég held að þessi mál hafi verið sett í góðan farveg. Það var gæfuspor þegar ættleiðingarfélagi var falið hlutverk á þessu sviði. Ég man ekki betur en að hlutast hafi verið til um að það fengi nokkurn fjárstuðning til starfsemi sinnar. Þegar ég kom að þessu í þingnefnd á sínum tíma var ætlunin að við það yrði gerður einhvers konar þjónustusamningur og það hefði það hlutverk að sjá um samskiptin, velja þau lönd sem þarna ættu hlut að máli o.s.frv.

Ég ætla ekki að blanda mér sérstaklega í ræðu hv. þm. Péturs Blöndals og ég leyfi hv. þm. Össuri Skarphéðinsson að eiga þá einkunn einum sem hann gaf henni. Ég verð þó að segja að sérstaklega fundust mér dapurleg rökin þegar kom að fjármálahliðinni, eins og það væru í sjálfu sér nokkur minnstu rök í þessu sambandi, að hér gætu átt í hlut útgjöld af stærðargráðunni 20 millj. kr. á ári. Þá er orðið hart á dalnum ef réttlætis- og sanngirnismál stranda vegna þess að þeim fylgi slíkur hverfandi óverulegur kostnaður í hátt á fjórða hundrað milljarða kr. ríkisútgjöldum. Við eigum ekki að stilla dæminu þannig upp heldur spyrja grundvallarspurninga: Er hér um sanngirnis- og réttlætismál að ræða sem á að vera hluti af samneyslu okkar, velferðarútgjöldum og þjónustu okkar, tekjujafnandi aðgerðum okkar innan hins opinbera kerfis? Ef niðurstaðan er sú að svo eigi að vera þá fær málefnið sína hlutdeild í þeim útgjöldum. Hún er mjög lítil í þessu tilviki og það fær það sinn sess þar, sína hlutdeild og svo er dæmið gert upp í heild.

Það er óskaplega ósanngjarnt að taka mál af þessu tagi og byrja á að horfa á það hvað þau kosta, til eða frá. Það finnst mér ekki rétt aðferðafræði, ekki rétt nálgun. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, þegar við skoðum svona mál, að það sé réttlætismál, sanngirnismál, að það sé ósanngjarnt að þessi hópur fái ekki einhvern stuðning af hendi hins opinbera, þá setjum við það inn í heildarmyndina. Svo stillum við af útgjöld og tekjur ríkisins. Það getur vel verið að það þýði að eitthvað örlítið minni fjármunir séu til skipta í önnur verkefni en þannig eigum við að nálgast hlutina. Fyrst spyrjum við okkur að því: Er þetta mál sem á heima í heildaraðgerðum ríkisins af þessu tagi? Svo setjum við reikningsdæmið upp, stillum það af og lokum því.

Í raun þarf ekki mikið meira um þetta að segja, frú forseti. Ég fagna því að við getum loksins borið okkur kinnroðalaust saman við hin Norðurlöndin að þessu leyti. Um upphæðirnar má auðvitað lengi deila en ég held að hér sé farið hófsamlega í málin. Menn fara a.m.k. ekki neinu offari. Það held ég að sé alveg ljóst, upphæðin er ekki slík. Sjálfsagt finnst mönnum að gera mætti betur, sérstaklega til að fyrirbyggja það sem hefur verið þáttur í þessu, að það hefur hreinlega getað skipt máli hver efnahagur væntanlegra ættleiðingarforeldra hefur verið varðandi það að ráðast í þessi útgjöld. Auðvitað viljum við ekki, ef við erum á því á annað borð að þetta eigi að vera valkostur fyrir fólk sem ekki verður þeirrar gæfu aðnjótandi að geta eignast sín börn sjálft að eiga kost á þessu, að þau mannréttindi séu bundin við efnahag heldur séu þau þá algild og við reynum að tryggja að allir standi sæmilega jafnt að vígi gagnvart möguleikum af þessu tagi. Þá má deila um hvort upphæðin þurfi að vera ríflegri, eða að reglunum sé hugsanlega breytt eða beitt þannig í framkvæmd að hægt sé að mæta tilteknu hærra hlutfalli af raunverulegum kostnaði, sem getur verið misjafn eftir löndum.

Þetta er a.m.k. gott skref og tvímælalaust í rétta átt. Það má alltaf hugsa sér að endurskoða framkvæmdina og upphæðir, eins og reyndar á að gera með reglubundnu millibili, og bæta úr því sem kann að þykja áfátt í upphaflegri gerð laganna.