tvöföldun Suðurlandsvegar -- málefni aldraðra.
Virðulegi forseti. Ég fagna því alveg sérstaklega að tekist hafi þverpólitísk samstaða um að tvöfalda Suðurlandsveginn. Það er ekki nema ár síðan eða svo að við þingmenn Samfylkingarinnar fluttum þingsályktunartillögu um að ráðist yrði í þetta verkefni þar sem við reyndum að fá alla þingmenn kjördæmisins með á þá tillögu. Það tókst ekki og því lýsi ég núna yfir sérstaklega mikilli ánægju með að menn skuli vera komnir inn á þessa hugmynd sem við settum fram fyrir ári.
Virðulegi forseti. Ég velti því aðeins fyrir mér, bæði í þessu máli og eins varðandi fjárframlög til aldraðra, að það virðist vera einhvers konar, ég veit ekki hvað ég á að kalla það, panikstjórnun í gangi. Það eru alltaf viðbrögð við hugmyndum, eitthvað gerist og það eru að koma kosningar. Þá á að grípa til allra aðgerða þrátt fyrir að búið sé að tala um þessi mál í mörg ár. Nú er farið að styttast í kosningar og þá er hægt að bregðast við nánast öllu sem upp kemur.
Þetta finnst mér mjög athyglisvert og dálítið einkennandi og kannski sérstaklega fyrir þá miklu taugaveiklun sem er í ríkisstjórnarflokkunum þessa dagana, þ.e. það eru að koma kosningar, ríkisstjórnin virðist vera fallin og þá er gripið til allra aðgerða sem hugsanlegar kunna að vera til vinsælda fallnar. Það er hins vegar ágætt að þetta komi þó ríkisstjórninni aðeins úr sporunum.
Varðandi þá umræðu sem hér hefur farið fram um vegamál, Vegagerðina og vegamálastjóra, sem er óþægileg af því viðkomandi eru ekki nálægir, er það dálítið sérstakt að það hefur gerst í nokkrum tilvikum að við fáum upplýsingar um verð sem tekur síðan verulegum breytingum eins og hér hefur verið nefnt, frá 6 milljörðum í fyrra upp í 12 milljarða nú.
Það má nefna í þessu samhengi að sennilega eru það göng til Vestmannaeyja sem hafa tekið mestum breytingum. Þau fóru úr 20 milljörðum í upphafi í 100 milljarða eftir skoðun þannig (Forseti hringir.) að það er ekkert nýtt í þessum efnum. Meginatriðið er samt að það er mikilvægt þegar menn setja frá sér verðhugmyndir að þær séu vandaðar.