133. löggjafarþing — 44. fundur,  7. des. 2006.

ummæli þingmanns um samgönguráðherra og Vegagerðina.

[10:56]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég tek til máls vegna fundarstjórnar forseta vegna þess að það eru líklega einir fjórir til fimm alþingismenn búnir að tala á undan mér í röðinni eftir að ég bað um orðið. Ég var a.m.k. á undan hv. þm. Lúðvíki Bergvinssyni að biðja um orðið og það er nokkuð síðan hann talaði.

Ég kvaddi mér hljóðs út af þessari umræðu um störf þingsins. Hvers vegna er hún? Ástæðan er sú að hæstv. samgönguráðherra hefur ekki enn þá dreift hér vegáætlun og verkefnum þingmanna til þess að fara yfir þau verkefni sem hér er talað um. Ættu menn ekki að fást við það í samgöngunefnd að klára þessi mál og koma þeim áfram? Nei, nei. Ég segi alveg eins og er að mér finnst skorta svör frá hæstv. ráðherra um það hvort við fáum yfirleitt að sjá þessa áætlun hér áður en þingmenn fara í jólahlé.

Svona vinnubrögð eru óþolandi og segja bara sitt um vingulsháttinn sem hefur verið í vegamálunum hérna og því að menn hafa enga stefnumörkun uppi. Þeir vita ekkert hvort 2+2 eða 1,5+eitthvað á að vera í framtíðinni. Þeir eru að komast að þeirri niðurstöðu núna að það eigi að tvöfalda vegina en Vegagerðin hefur unnið fram á þennan dag að því, og hún er ekki hætt því enn þá, að gera ráð fyrir 2+1 á leiðinni austur fyrir fjall.

Svo tel ég að menn verði að horfast í augu við að það verður að fara eftir mikilvægi veganna. Þótt það verði slys á vegi eins og þeim sem við höfum verið að tala um undanfarna daga, og ég dreg ekki úr og tek undir að það þurfi að taka á því máli, mega menn ekki gleyma því að það eru jafnhættulegir kaflar aðrir í kringum borgina og menn verða að horfa á þetta allt saman í samhengi.

Það er eiginlega hálfömurlegt að Vesturlandsvegurinn virðist vera hálfmunaðarlaus. Það eru hins vegar nógir til að tala um önnur svæði.

Úr því að hv. formaður samgöngunefndar er að biðja um orðið býst ég við að hann ætli að taka aldeilis á ráðherra sínum, að hann fái nú í hendurnar plaggið svo að hægt sé að fara að vinna að vegáætluninni.

(Forseti (SP): Forseti vill minna hv. þingmenn á að þeir eru að ræða hér undir liðnum fundarstjórn forseta og þeim ber að halda sig við það efni.)