ummæli þingmanns um samgönguráðherra og Vegagerðina.
Hæstv. forseti. Ég hygg að við í þingsalnum höfum yfirleitt getað treyst því að þær upplýsingar sem hér hafa verið lagðar fram og við höfum byggt störf okkar á séu eitthvað sem við getum treyst, að þau gögn sem lögð eru inn til þinghaldsins til að byggja á og þær tölur sem okkur hafa borist séu eitthvað sem við getum byggt ræður okkar á. Mér virðist hins vegar umræðan núna fara í allt annan farveg, fara í að vitna í viðtöl og heyra síðan hæstv. samgönguráðherra tala um hvernig hann sér málin fyrir sér en ekki hvernig við vinnum venjulega í þingsalnum undir stjórn forseta við það að fjalla um þessi mál.
Ég hlustaði á hæstv. landbúnaðarráðherra áðan lýsa þeim ágæta manni sem hann vitnaði til um framtíðarsýn varðandi Suðurlandsveg. Það var nú fínt, Guðni minn, að þú skyldir átta þig á því 12 árum síðar að þetta hafi verið nauðsynlegt. (Landbrh.: Ég áttaði mig á því þá þegar.) Það er nefnilega þannig að menn hafa lagt til mál í hv. þingi um að menn horfðu til framtíðar um hvað væri æskilegt að gera varðandi framtíðaráfanga í vegagerð. Og ég held að menn ættu að fara að snúa sér að því.