133. löggjafarþing — 45. fundur,  8. des. 2006.

upplýsingar og samráð í fyrirtækjum.

231. mál
[11:06]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Yfirlýst markmið þessa lagafrumvarps er í sjálfu sér góðra gjalda vert en það fjallar um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum. Það kveður á um að stjórnendur fyrirtækja skuli veita starfsmönnum upplýsingar í tilteknum tilvikum. Hins vegar er frumvarpið þrátt fyrir ágæt markmið í rauninni hvorki fugl né fiskur og það er háð ýmsum takmörkunum sem vekja spurningar hjá mér. Þannig á það aðeins að taka til fyrirtækja sem stunda atvinnurekstur sem kallað er og kveðið er á um það í 3. gr. frumvarpsins en í skýringum með henni segir á þá leið að opinberar stofnanir sem hafi með höndum stjórnsýsluverkefni falli utan hugtaksins, og þar með utan þessara laga, enda geti slíkar stofnanir ekki talist stunda atvinnustarfsemi eða rekstur í framangreindum skilningi.

Með öðrum orðum fellur almenn opinber starfsemi eins og skólar og sjúkrahús utan þessara laga og starfsmenn slíkra stofnana eiga ekki rétt á því að þeim séu veittar upplýsingar sem kveðið er á um í þessu frumvarpi. Og hverjar skyldu þær vera? Jú, þær eru skilgreindar í 4. gr. frumvarpsins en þar er vísað til þess að „atvinnurekendur skulu veita fulltrúum starfsmanna upplýsingar um eftirfarandi:

a. nýliðna þróun og horfur varðandi starfsemi og fjárhagsstöðu fyrirtækisins,

b. stöðu, skipulag og horfur í atvinnumálum í fyrirtækinu og um allar ráðstafanir sem fyrirsjáanlegar eru, einkum ef atvinnuöryggi er ógnað,

c. ákvarðanir sem líklegt er að leiði til verulegra breytinga á skipulagi vinnunnar eða á ráðningarsamningum starfsmanna, þar með taldar ákvarðanir sem eru byggðar á ákvæðum laga um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum og hópuppsagnir“.

Með öðrum orðum er hér verið að ræða um þá skyldu atvinnurekandans að veita starfsmönnum upplýsingar ef breytingar verða á starfsvettvangnum í starfseminni sem geta haft áhrif á einstaklinga sem þar starfa. Ég spyr: Hvers vegna í ósköpunum er þetta ekki látið taka til opinberrar starfsemi? Hvers vegna eru menn með þessar hömlur? Mér er það fullkomlega óskiljanlegt.

Síðan verð ég að játa að ég hef ákveðnar efasemdir um gildi þessara laga með hliðsjón af því að atvinnurekandinn hefur einhliða vald til að binda fulltrúa starfsmanna trúnaði. Hann getur skilgreint þær upplýsingar sem hann veitir sem trúnaðarmál sem launamaðurinn geti aldrei greint frá, í sumum tilvikum jafnvel eftir að hann lýkur störfum hjá fyrirtækinu. Að vísu segir að það skuli gert á grundvelli hlutlægra forsendna, ég man nú ekki hvernig þetta er orðað nákvæmlega en það eiga að vera hlutlægar aðstæður sem þá lúta að hagsmunum fyrirtækisins.

Það segir í 7. gr., með leyfi forseta:

„Atvinnurekanda er ekki skylt að veita fulltrúum starfsmanna upplýsingar eða að hafa við þá samráð ef upplýsingarnar eru samkvæmt hlutlægum viðmiðum þess eðlis að það geti valdið alvarlegu tjóni eða röskun á starfsemi fyrirtækisins.“

Í 8. gr., með leyfi forseta:

„Atvinnurekanda er heimilt að binda upplýsingar sem hann veitir fulltrúum starfsmanna trúnaði á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins.“

Þarna er þetta vissulega skilgreint, „á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins“, en ég hef ákveðnar efasemdir um gildi þessa.

Mín megingagnrýni á þetta frumvarp er hve takmarkandi þetta er gagnvart opinberri starfsemi. Ég vildi gjarnan fá rök fyrir því frá stjórnarmeirihlutanum og ráðuneytinu hvernig á því standi að opinbera geiranum er haldið fyrir utan upplýsingalögin.

Ég óska eftir upplýsingum frá stjórnarmeirihlutanum og ráðuneytinu um hvernig á því standi að opinberri starfsemi er haldið fyrir utan þessi lög og hvernig á því stendur að starfsemi sem telst til stjórnsýslunnar er haldið þarna fyrir utan. Ég vek athygli á gagnrýni sem hefur komið frá samtökum opinberra starfsmanna þar að lútandi án þess að þeir hafi nokkurn tíma fengið viðhlítandi svör við því. Hvernig stendur á því að opinberri stjórnsýslu er haldið fyrir utan þessi lög um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum?