133. löggjafarþing — 45. fundur,  8. des. 2006.

stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

347. mál
[11:41]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður er alveg samkvæmur sjálfum sér í þessu og svar hans er alveg í samræmi við það sem ég átti von á af hans hálfu.

Stóra málið er auðvitað það að ef þetta er orðið venjulegt hlutafélag, orðið algerlega séreign, þá er enginn ávinningur af sameigninni. Þá er enginn tilgangur í henni, það er búið að leysa hana upp. Og þá spyr maður: Til hvers á þá að vera að reka sjóðinn og hafa sérákvæði sjóðnum til hagsbóta í samkeppni við aðrar fjármálastofnanir? Það er stóra spurningin.

Hv. þingmaður, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, svaraði henni ekki. Það er kannski stóra spurningin sem hann þarf að svara og fleiri alþingismenn.

Ef sveitarfélög geta selt þennan hlut og ef við förum að verðleggja hann í samræmi við það sem bankarnir hafa þróast á síðustu árum, þá gætum við kannski fljótlega farið að sjá gengi á hlut upp á 7–10. Það væri tífalt eigið fé sem hægt væri að selja hann fyrir. Það er töluverður peningur.

Það er kannski einn misskilningur í þessu og hann er að ábyrgð sveitarfélaga hér á landi á skuldbindingum lánasjóðsins hefur alla tíð verið mjög takmörkuð, ólíkt því sem er á Norðurlöndunum. Það segir t.d. í fyrstu lögunum um Lánasjóð sveitarfélaga, með leyfi forseta:

„Sjóðurinn er sjálfstæð stofnun, sameign allra sveitarfélaga á Íslandi“ — sameign — „en þau bera þó ekki ábyrgð á skuldbindingum hans umfram hin árlegu tillög sín til sjóðsins.“ — Með öðrum orðum, Reykjavíkurborg hefur aldrei borið neina ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins.