133. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2006.

ættleiðingarstyrkir.

429. mál
[15:31]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég ætla nú ekki að lengja þessa umræðu, ég vildi bara fá að nota tækifærið og koma hér í ræðustól og þakka þá miklu samstöðu sem er um þetta mál, þetta mikilvæga mál og mikla réttlætismál og þakka þingmönnum fyrir að liðka fyrir framgangi þess hér í þinginu. Frumvarpið kom seint fram af ákveðnum ástæðum en ég vildi bara rétt í örstuttu máli koma hér og lýsa yfir mikilli ánægju með að þetta mál, þetta frumvarp skuli nú u.þ.b. að verða að lögum og fagna því sérstaklega.