endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Hæstv. forseti. Ég vil segja aðeins örfá orð. Ég er sammála því sem hér var farið yfir og nefndinni í afgreiðslu hennar á þessu málefni. Ég fagna því sérstaklega sem þarna er verið að gera vegna þess að mér finnst að þetta sýni aukinn skilning meðal alþingismanna og Alþingis á íslenskri framleiðslu og íslenskum atvinnuvegum, en ég lít þannig á að kvikmyndagerð sé hluti af íslensku atvinnulífi.
Hér var það tínt til í ræðu hv. formanns nefndarinnar að 900 störf hefðu verið í þessum iðnaði á síðasta ári eða árið 2005, held ég að það hafi verið. Ég vil vekja athygli á því að hér gekk ákaflega illa að fá Alþingi og ríkisvaldið til þess að styðja við bakið á íslenskum iðnaði. Það hefur gengið illa á undanförnum árum. Ég vek athygli á skipasmíðaiðnaðinum sem eitthvað líklega í kringum 1.200 manns höfðu beina atvinnu af á sínum tíma, þ.e. þegar hér var mest að gera í skipasmíðunum. Það eru engir tollar á innfluttum skipum og stuðningur við þann iðnað hefur verið ákaflega takmarkaður og mikið minni en í löndunum hér í kringum okkur fram á þennan dag.
Ég vona að það sem hér er verið að gera núna sé vísbending um að menn séu tilbúnir að skoða betur hagsmuni Íslendinga af þeim atvinnugreinum sem eru í landinu og reyna að gera þeim mögulegt að minnsta kosti að nálgast það samkeppnisumhverfi sem þeim er búið í löndunum hér í kring.