133. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2006.

breyting á lögum á orkusviði.

365. mál
[18:28]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég vil bara gera grein fyrir því að eftir að þær breytingar hafa komið fram sem iðnaðarnefnd var sammála um að leggja fram um þetta mál þá erum við samþykk því, þeir sem voru í iðnaðarnefnd fyrir hönd Samfylkingarinnar.

Þarna er um að ræða að færa fyrirsvar fyrir þessum fyrirtækjum, þ.e. Hitaveitu Suðurnesja, Orkubúi Vestfjarða og Rarik, undir forræði fjármálaráðuneytisins og það hefur verið lagt til áður.