133. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2006.

málefni aldraðra.

190. mál
[21:25]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Eins og ég nefndi við 1. umr. um þetta mál tel ég eðlilegt að þessi nefskattur, 6.314 kr. komi til frádráttar persónuafslætti sem er mínus nefskattur. Það mundi einfalda skattkerfið mjög mikið og vera í anda orðanna: Einfalt Ísland. Það er minn fyrirvari við þetta frumvarp að menn skuli ekki fara þá leið.