133. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2006.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

374. mál
[23:54]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd, sem er að finna á þingskjali 545.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólaf Pál Gunnarsson frá fjármálaráðuneyti. Nefndinni bárust auk þess umsagnir um málið.

Tilefni frumvarpsins er kaup ríkissjóðs á hlut Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun þar sem greitt var með skuldabréfi sem lífeyrissjóðir þessara sveitarfélaga nota til að greiða fyrir ábyrgð sína á sjóðnum. En um þetta er fjallað í nefndaráliti og ætla ég ekki að lesa það frá orði til orðs.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Jóhanna Sigurðardóttir, með fyrirvara, Dagný Jónsdóttir, Lúðvík Bergvinsson, með fyrirvara, Birgir Ármannsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, með fyrirvara, Ásta Möller og Sæunn Stefánsdóttir.